Fotbolti.net
15.11.26 - 10:17
Brynjar Ingi Erluson

Endurkoma Ronaldinho í opinni dagskrá

Ronaldinho snýr aftur á völlinn í dag

Ronaldinho snýr aftur á völlinn í dag

Canon

Mynd: EPA

Ronaldinho, einn besti fótboltamaður allra tíma, er að snúa aftur á völlinn og mun taka sinn hinsta dans þegar hann spilar með ítalska C-deildarliðinu Ravenna gegn Forli í dag.
Brasilíumaðurinn hefur ekki spilað keppnisleik síðan árið 2015 og fátt benti til þess að hann myndi nokkurn tímann snúa aftur á völlinn.

Í sumar eignaðist hann hins vegar hlut í ítalska félaginu Ravenna og lét þá í ljós áhuga á að spila með liðinu á tímabilinu.

Flestir töldu að um væri að ræða leið til að vekja athygli á félaginu og að Ronaldinho væri ekkert á leiðinni að reima á sig takkaskóna á ný. Annað hefur þó komið á daginn því nú hefur verið staðfest að hann muni spila gegn Forli.

Ronaldinho hefur æft með aðalliði Ravenna undanfarna daga til að undirbúa sig fyrir leikinn og virðist vera í mun betra líkamlegu formi en á seinni hluta ferilsins. Þá hefur hann þegar sýnt gamla takta á æfingasvæðinu og minnt á hvers vegna hann var á sínum tíma einn besti fótboltamaður heims.

Þeir sem vilja sjá snillinginn snúa aftur á völlinn þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að missa af leiknum, því hann verður sýndur í beinni útsendingu og hefst klukkan 16:30 að íslenskum tíma.

Leikurinn verður í opinni dagskrá á nokkrum miðlum, meðal annars á YouTube-rás Sky Sports, Kick og OneFootball.

Hér fyrir neðan má finna tengla á báðar útsendingarnar, en enn er óvíst hvort Sky Sports muni takmarka aðgang fyrir áhorfendur utan Bretlandseyja. Hjá OneFootball verður hins vegar hægt að fylgjast með leiknum án landfræðilegra takmarkana á Íslandi.

Útsending Sky Sports á Youtube

Smelltu hér til að horfa á útsendingu OneFootball

Smelltu hér til að horfa á útsendingu Kick
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.