15.11.26 - 15:30
Brynjar Ingi Erluson
Meiddist í stórsigrinum á Grikkjum

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Hollenski miðjumaðurinn Frenkie de Jong verður ekki með Hollandi gegn Þýskalandi í lokaumferð Þjóðadeildar Evrópu á morgun.
De Jong bar fyrirliðabandið í fjarveru Virgil van Dijk í 7-0 stórsigri Hollendinga á Grikkjum fyrir helgi, en meiddist í leiknum og er nú farinn aftur til Barcelona til að fara í frekari skoðun.
Í fyrstu var talið að um bakmeiðsli væri að ræða, en síðar kom í ljós að meiðslin eru við lífbeinið, sem getur verið þrálátt vandamál fyrir fótboltamenn.
Þetta eru slæmar fréttir fyrir Börsunga sem glíma nú þegar við töluverð meiðslavandræði. Rodri, Xavi Espart og Roony Bardghji eru allir á meiðslalistanum, en góðu fréttirnar eru þær að Dani Olmo og Jules Kounde eru væntanlegir aftur eftir landsleikjahléið.