15.11.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Skotmark Real Madrid og Man Utd fer ekki fet í janúar

3 mörk og 2 stoðsendingar í 15 leikjum það sem af er tímabils.

Mynd: EPA

Spænski miðvörðurinn Jacobo Ramón hefur verið afar mikilvægur hlekkur í uppgangi Como, sem leikur undir stjórn Cesc Fábregas.

TENGT EFNI
Paz áfram hjá Como (Staðfest) - Greiddu 60 milljónir evra fyrir hann
Ramón er 21 árs gamall og ólst upp hjá Real Madrid, sem seldi hann til Como með endurkaupsákvæði - líkt og Nico Paz.
Ramón hefur verið frábær hjá Como og segja fjölmiðlar á Ítalíu að Real Madrid hafi áhuga á að kaupa hann aftur í sínar raðir, eins og gerðist með Nico Paz.
Manchester United er í sárri neyð í varnarlínunni hjá sér og hefur verið orðað við ýmsa miðverði, þar á meðal Ramón. Það er þó útilokað að Como selji hann í janúarglugganum.
„Við höfum ekkert heyrt frá Real Madrid varðandi framtíð Jacobo Ramón. Það eina sem ég get lofað er að hann fer ekki neitt í janúarglugganum," segir Carlalberto Ludi, yfirmaður fótboltamála hjá Como.
Ramón er talinn vera opinn fyrir félagaskiptum aftur til uppeldisfélagsins. Hann er mjög hrifinn af Real Madrid liðinu og hefur sagt í viðtölum að Eder Militao sé hans helsta fyrirmynd.