15.11.26 - 21:23
Ívan Guðjón Baldursson
Tvö víti og rautt spjald á Spáni

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Það er rosalegur leikur í gangi í Þjóðadeildinni þar sem England er tveimur mörkum yfir á útivelli gegn heims- og Evrópumeisturum þegar rétt tæpar 20 mínútur eru eftir af venjulegum leiktíma.
Englendingar byrjuðu leikinn af miklum krafti og voru óheppnir að ná ekki forystunni fyrr en Harry Kane skoraði úr vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks. Pau Cubarsí braut á Kane innan vítateigs og skoraði hann örugglega af vítapunktinum, þó að Unai Simón hafi skutlað sér í rétta átt.
Lærlingar Thomas Tuchel tvöfölduðu forystuna þegar Arsenal-mennirnir mennirnir Declan Rice og Ezri Konsa tengdu til að skora laglegt mark eftir hornspyrnu. Konsa var skilinn eftir einn og óvaldaður í dauðafæri og stangaði boltann í netið.
Skömmu síðar setti Ben White þriðja markið eftir sendingu frá Jude Bellingham en svo slapp Lamine Yamal einn í gegn og fann fyrir smá snertingu frá Elliot Anderson innan vítateigs, svo hann lét sig falla með tilþrifum. Clément Turpin dómari leiksins dæmdi vítaspyrnu og rautt spjald þar sem Anderson var aftasti varnarmaður og rændi upplögðu marktækifæri án þess að reyna við boltann.
Mikel Oyarzabal, samherji Orra Steins Óskarssonar í Real Sociedad, skoraði af vítapunktinum og eru heimamenn tvíefldir verandi einum leikmanni fleiri á lokakaflanum.
Staðan er 1-3 fyrir England og takist lærlingum Tuchel að halda út verða þeir fyrsta liðið til að sigra Spán í keppnisleik í rúmlega þrjú ár.
Spánn hefur farið í gegnum síðustu 43 keppnisleiki án þess að tapa og orðið í leiðinni bæði Evrópu- og heimsmeistari.