Fotbolti.net
15.11.26 - 16:30
Brynjar Ingi Erluson

Var nálægt því að taka við Man Utd fyrir fimm árum

Rudi Garcia

Rudi Garcia

Canon

Mynd: EPA

Franski þjálfarinn Rudi Garcia hefur greint frá því að hann hafi verið nálægt því að verða stjóri Manchester United fyrir fimm árum, en hann segir frá þessu í viðtali við Athletic.
Garcia hafði yfirgefið Lyon sumarið 2021 og var í leit að nýju starfi þegar Ole Gunnar Solskjær var rekinn frá United undir lok ársins. Enska félagið hóf þá leit að bráðabirgðastjóra sem myndi stýra liðinu út tímabilið.

Frakkinn kom til greina í starfið og fór í tvö viðtöl hjá United áður en félagið ákvað á endanum að ráða Ralf Rangnick.

„Já, ég fór í tvö viðtöl hjá þessu frábæra félagi sem ég tel eitt besta félag heims. Ég væri til í að vinna á Englandi og ég hitti Darren Fletcher og John Murtough. Þetta var bráðabirgðastarf og þeir spurðu mig hvað ég myndi gera eftir að tímabilinu væri lokið. Ég sagði þeim að ég myndi gera svo vel að ég yrði áfram í Manchester, en þeir gáfu Ralf starfið,“ sagði Garcia.

Rangnick tók við liðinu og stýrði því út tímabilið, en það gekk ekki áfallalaust fyrir sig. United hafnaði í sjötta sæti ensku úrvalsdeildarinnar og Erik ten Hag tók við stjórninni um sumarið.

Garcia fór hins vegar aðra leið og tók við Al Nassr í Sádi-Arabíu. Þaðan lá leiðin til Napoli, þar sem hann staldraði stutt við, en síðast stýrði hann belgíska landsliðinu.
Ralf Rangnick fékk starfið

Ralf Rangnick fékk starfið

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.