Fotbolti.net
15.11.26 - 14:10
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Viggó má líta í kringum sig

Viggó má líta í kringum sig
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Viggó Valgeirsson hefur samkvæmt heimildum Fótbolta.net fengið grænt ljóst frá Eyjamönnum til að líta í kringum sig eftir fall ÍBV úr Bestu deildinni.

Sóknarmaðurinn er samningsbundinn ÍBV út næsta tímabil en Eyjamaðurinn, sem vill spila áfram í efstu deild, má ræða við önnur félög.
Viggó er tvítugur og kom við sögu í 24 leikjum í Bestu deildinni í sumar. Þrátt fyrir að byrja einungis sjö þeirra náði hann skora þrjú mörk og leggja upp eitt. Tvö af mörkunum komu í leikjum gegn FH.

Hann er uppalinn í Eyjum en tímabilið 2025 lék hann með Njarðvík sem vildi halda honum eftir það tímabil og þá var einnig áhugi frá Noregi á Eyjamanninum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.