banner
   fim 16. janúar 2014 10:00
Björgvin Páll Gústavsson
Pistill: Pistlar á Fótbolta.net eru viðhorf höfundar og þurfa ekki endilega að endurspegla viðhorf vefsins eða ritstjórnar hans.
Hvernig fótboltamenn eru landsliðsmenn í handbolta?
Björgvin Páll Gústavsson
Björgvin Páll Gústavsson
Björgvin Páll Gústavsson.
Björgvin Páll Gústavsson.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Guðjón Valur Sigurðsson er öflugur fótboltamaður.
Guðjón Valur Sigurðsson er öflugur fótboltamaður.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Arnór Atlason er eins og Owen Hargreaves eða Michael Essien.
Arnór Atlason er eins og Owen Hargreaves eða Michael Essien.
Mynd: Hilmar Þór
Snorri Steinn Guðjónsson: ,,Réttur maður á réttum stað og set hiklaust Ian Rush stimpil á hann.
Snorri Steinn Guðjónsson: ,,Réttur maður á réttum stað og set hiklaust Ian Rush stimpil á hann.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Róbert Gunnarsson: ,,Markvörður hjá eldri og er frábær á milli stangana en á það til að gleyma því að hann sé bara góður í marki... Er svona okkar Fabian Barthez.
Róbert Gunnarsson: ,,Markvörður hjá eldri og er frábær á milli stangana en á það til að gleyma því að hann sé bara góður í marki... Er svona okkar Fabian Barthez.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Vignir Svavarsson: ,,Hefur hingað til mikið verið að leika sem sóknarmaður og telur sig góðan þar, sem er misskilningur. Hann er okkar Ármann Smári Björnsson.
Vignir Svavarsson: ,,Hefur hingað til mikið verið að leika sem sóknarmaður og telur sig góðan þar, sem er misskilningur. Hann er okkar Ármann Smári Björnsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenska handboltalandsliðið stendur í ströngu á EM í Danmörku þessa dagana en liðið mætir Spánverjum í dag klukkan 17:00. Eins og mörg önnur handboltalið þá hitar íslenska landsliðið upp fyrir æfingar með því að skella sér í fótbolta. Björgvin Páll Gústavsson, markvörður landsliðsins, skrifaði skemmtilegan pistil á heimasíðu sína gustavsson.is þar sem hann fer yfir fótboltahæfileika allra í landsliðinu. Pistilinn má sjá hér að neðan.



Æfing vikunnar að þessu sinni er upphitunin hjá okkur í landsliðinu sem er jú auðvitað fótbolti. Það skemmtilegasta sem að maður gerir er að spila landsleiki fyrir Íslands hönd í handbolta en þar á eftir kemur fótboltinn á æfingu með landsliðinu. Liðunum er skipt upp í yngri og eldri eins og vaninn er og er gríðarlegur metnaður lagður í fótboltann.

Þessar fáu mínútur fyrir hverja æfingu gefa tóninn fyrir restina af æfingunni og sést það vel í fótboltanum hversu miklir keppnismenn leikmenn landsliðsins eru, reyndar róast fótboltinn töluvert þegar komið er út á stórmót eins og skynsamlegt er.

Þó svo að menn taki fótboltann alvarlega þá koma stundum upp atvik sem að hægt er að brosa yfir og bauð Pétur sjúkraþjálfari uppá eitt slíkt á æfingunni í gær og má sjá það hér að neðan...

Einnig hef ég ákveðið að greina leikmenn liðsins eins og einn íslenskur knattspyrnuþjálfari gerði á sínum tíma. Þessi listi gæti orðið til þess að ég verði ekki valin aftur í liðið, fái ekki aftur meðhöndlun hjá sjúkraþjálfurunum og fái liðið upp á móti mér en það verður þá bara að hafa það... strákarnir verða bara að nota gagnrýnina á uppbyggjandi hátt. Hér kemur skemmtilegt video frá síðasta leik og umsagnir um leikmenn liðsins þar fyrir neðan. Njótið vel!

Guðjón Valur: Geðveikt góður í öllu og má líkja við Johan Cruyff (herbergisfélagi minn og þurfti að lesa þetta yfir áður en ég póstaði þessu)

Stefán Rafn: Lúkkar vel á velli en það skilar sér ekki í mörkum. Svona Andy Carrol týpa.

Arnór Atla: Dreifir spilinu vel en er erfitt að treysta á að hann sé með vegna meiðsla. Verð að henda Owen Hargreaves eða Essien stimpil á hann.

Óli Guðmunds: Ekki sérstakur útileikmaður sem að var í vandræðum með að finna sína stöðu á vellinum. Er þó best geymdur í bakverði.... Er núna kominn í rammann hjá ungum og er að skila sinni vinnu vel þar... “so far”... En þar sem lítil reynsla er kominn á hann sem markmann þá verður hann dæmdur sem bakvörður og er ekki ólíkur Gary Neville

Ásgeir Örn: Góður félagi til að hafa hliðiná sér í vörninni enda með góðan leikskilning og talanda en kann hvorki að taka við bolta, né koma honum frá sér. Samt góður strákur sko. Hvítur Titus Bramble.

Gunnar Steinn: Bjartasta vonin hjá íslenska handboltalandsliðinu í fótbolta en menn eru farnir að setja smá spurningarmerki við hæfileika hans eftir skot sem fór ca. 48 m. yfir markið í fyrradag. Hendum Frank Lampard stimpli á hann þar sem hann er enn taplaus á sínum knattspyrnuferli í handboltalandsliðinu en er fljótur að detta niður í Darren Fletcher ef hann stendur ekki undir Lampard nafnsbótinni út EM.

Aron Pálmarsson: Með mjög góðan fót og mikla hæfileika en vantar uppá vinnuframlag. Er svona Eiður Smári okkar handboltamannanna.

Snorri Steinn: Knattspyrnumaður sem að kemur sjaldan við boltann en þegar hann kemur við hann skilar það yfirleitt marki. Á það til að hverfa á tímabili og stóð síðasta svoleiðis tímabil yfir hjá honum í tæpt ár. Réttur maður á réttum stað og set hiklaust Ian Rush stimpil á hann.

Robbi Gunn: Markvörður hjá eldri og er frábær á milli stangana en á það til að gleyma því að hann sé bara góður í marki... Er svona okkar Fabian Barthez.

Þórir Ólafs: Góður í fótbolta, fitlar mikið við boltann en stundum svoldið linur. Hika ekkert við að henda Nani á hann.

Arnór Þór Gunnarsson: Með betri fót en bróðir sinn sem er í Premier league en er hræddur við kontakt sem er mikill galli miðað við stöðu hans á vellinum. Hann er eins og ef maður myndi henda Michael Owen aftarlega á völlinn.

Kári Kristján: Misjafnasti leikmaður heims. Allt eða ekkert gæji og mjög erfitt að lesa hvernig dagurinn verður hjá honum. Fann engan fótboltamann sem hægt er að líkja við hann þannig að við segjum bara að hann sé eins og Herjólfur... Erfitt að treysta á hann...

Sverre Andreas: Vanmetinn leikmaður. Með sterkan vinstri fót og skilar yfirleitt sínu. Ekki ólíkur Jon Arne Riise.

Rúnar Kárason: Leikmaður með ákveðna hæfileika en hefur ekki náð að nýta þá nógu vel ennþá, góður skotmaður en sumar sendingar eiga það til að lúkka líka eins og skot, þarf að vinna í stutta spilinu. Ef að hann heldur rétt á spilunum þá gæti hann farið að líkjast þessum leikmanni sem spilaði með Dalvík á sínum tíma, held að hann heiti Heiðmar Felixson.

Aron Rafn: Hann gerði út um sinn knattspyrnuferil með viðtali í fjölmiðlum um daginn en þar sagðist hann hafa meitt sig í fótbolta. Slíkt er bannað og ef maður meiðist í fótbolta þá harkar maður það af sér og gerir svo meiðslin upp strax og handbolti hefst á æfingunni. Fær ekki dóm á sig vegna þessara ummæla.

Bjarki Már: Ekki góður í fótbolta og má líkja honum við Oleg Luzhny.

Vignir Svavars: Tæknilega mjög góður miðað við stærð en hefur en ekki fundið sína stöðu á vellinum. Hefur hingað til mikið verið að leika sem sóknarmaður og telur sig góðan þar, sem er misskilningur. Hann er okkar Ármann Smári Björnsson.

Ég sjálfur: Hef litla yfirsýn, á það til að halda boltanum of lengi og stundum í vandræðum með að losa mig við boltann. Berst samt vel og reyni að bæta upp skort á hæfileikum með því að hlaupa og berjast. Hendi hiklaust á mig Hemma Hreiðars stimpli.

Aðrir leikmenn...
-Pétur sjúkraþjálfari : Skilar yfirleitt sínu og mikill baráttuhundur. Á það til að meiða menn en fær það þá yfirleitt í bakið og þarf að meðhöndla viðkomandi í framhaldinu. Hann er okkar Jón Ragnar Jónsson.
-Gunnar Magnússon : Hann hefur spilað í kringum 10 leiki á ferlinum og hefur átt á þessum tíma eina heppnaða sendingu en sú sending var reyndar í anda David Beckham, en þar skrúfaði hann boltann úr mikill fjarlægð fyrir markið sem skilaði glæsilegu marki og lifir hann enn þann dag í dag á þessari mögnuðu sendingu. Verðum að henda Beckham stimplinum á hann enda ekki ólíkir á velli.
-Erlingur Richardsson : Jamie Carragher
-Svo virðist sem Elli sjúkraþjálfari hafi lagt skóna á hilluna en hans er ekki sárt saknað.

Björgvin Páll Gústavsson

gustavsson.is


Athugasemdir
banner
banner
banner