Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 16. janúar 2022 00:20
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Martial tjáir sig - „Mun aldrei neita að spila leik fyrir Man Utd"
Anthony Martial.
Anthony Martial.
Mynd: Getty Images
Sóknarmaðurinn Anthony Martial þvertekur fyrir að hafa neitað að mæta í vinnuna í dag þegar Manchester United spilaði við Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni.

Ralf Rangnick, stjóri Man Utd, sagði frá því eftir leikinn að planið hefði verið að hafa Martial í hópnum, en franski sóknarmaðurinn neitaði að taka þátt.

„Hann vildi ekki vera í hópnum," sagði Rangnick eftir jafnteflið gegn Villa.

Martial hefur lítið spilað á tímabilinu og hann vill komast frá Man Utd í þessum mánuði. Hann segir Rangnick hins vegar ekki vera að segja rétt frá. Hann deilir því til aðdáenda sinna á Instagram að hann hafi ekki neitað að spila.

„Ég mun aldrei neita að spila leik fyrir Man Utd. Ég hef verið hérna í sjö ár og ég hef aldrei og mun aldrei vanvirða stuðningsfólkið og félagið," skrifaði Martial á Instgram.

Það er einhver sem er ekki að segja rétt frá í þessu máli.


Athugasemdir
banner
banner
banner