Fotbolti.net
16.01.23 - 20:30
Ívan Guðjón Baldursson

Fjórtán stjórar reknir á Championship tímabilinu

Chris Wilder var rekinn frá Middlesbrough í október. Michael Carrick tók við hans starfi.

Chris Wilder var rekinn frá Middlesbrough í október. Michael Carrick tók við hans starfi.

Canon

Mynd: Getty Images

Cardiff City er í 21. sæti Championship deildarinnar og var að reka knattspyrnustjórann sinn á dögunum. Cardiff er þar með fyrsta félag deildarinnar til að reka tvo stjóra á þessari leiktíð.

Þegar önnur félög eru skoðuð kemur í ljós að í heildina hafa 13 félög af 24 rekið knattspyrnustjóra á deildartímabilinu, sem er rétt rúmlega hálfnað. Í heildina hafa 14 stjórar verið reknir hingað til.

Til gamans má geta að síðasta sumar voru sjö nýir knattspyrnustjórar ráðnir til félaga í Championship deildinni. Aðeins fjórir þeirra eru enn í starfi í dag - þar á meðal Vincent Kompany hjá Burnley og Jon Dahl Tomasson hjá Blackburn.

Hægt er að búast við að fleiri stjórar fái að fjúka á næstu mánuðum er baráttan verður harðari á báðum endum stöðutöflunnar.

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Middlesbrough14+1128
2Wolves14+827
3Birmingham14+1326
4Stoke City14+526
5Swansea14+526
6West Brom14+525
7Southampton14+1524
8West Ham14+1523
9Sheffield Utd14+322
10Portsmouth14+322
11QPR14+521
12Norwich14+318
13Millwall14-118
14Blackburn14-218
15Bristol City14-318
16Wrexham14-217
17Bolton15-917
18Cardiff City14-115
19Lincoln City14-1015
20Watford14-1014
21Charlton Athletic14-1114
22Burnley14-810
23Derby County15-1610
24Preston NE14-185
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.