Fotbolti.net
16.01.23 - 10:00
Elvar Geir Magnússon

Ödegaard þegar búinn að bæta markatölfræði sína frá síðasta tímabili

Martin Ödegaard.

Martin Ödegaard.

Canon

Mynd: Getty Images

Norski miðjumaðurinn Martin Ödegaard, fyrirliði Arsenal, hefur verið gjörsamlega geggjaður á tímabilinu og leikið lykilhlutverk í því að Arsenal er með átta stiga forystu á toppi ensku úrvalsdeildarinnar.

Nú þegar tímabilið er næstum hálfnað hefur hann þegar bætt markatölfræði sína frá öllu síðasta tímabili, bæði hvað varðar aðkomu að mörkum og að skora.

Ödegaard er kominn með átta mörk og fimm stoðsendingar í 23 leikjum. Á síðasta tímabili var hann með sjö mörk og fimm stoðsendingar í 40 leikjum.
Arsenal er með stærstu forystu í ensku úrvalsdeildinni, eftir að hafa leikið sama fjölda leikja og liðið í öðru sæti, síðan 2003-04 þegar liðið vann deildina með ellefu stiga mun.

Arsenal hefur fengið 47 stig úr 18 úrvalsdeildarleikjum á þessu tímabili en það er hæsti stigafjöldi sem liðið hefur krækt í á þessum tímapunkti í sögu deildarinnar.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Man City10+821
3Brighton10+1720
4Chelsea10+417
5Everton10+216
6Liverpool10+216
7Brentford10+715
8Bournemouth10+215
9Leeds10+214
10Tottenham10-112
11Newcastle10-312
12Aston Villa9-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Crystal Palace10-128
19Man Utd9-57
20Sunderland10-106
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.