Fotbolti.net
16.02.21 - 10:43
Elvar Geir Magnússon

Spáir miklum vandræðum ef Liverpool nær ekki Meistaradeildarsæti

Stan Collymore, fyrrum leikmaður Liverpool.

Stan Collymore, fyrrum leikmaður Liverpool.

Canon

Mynd: Getty Images

Stan Collymore telur að margra ára vandræði gætu fylgt Liverpool ef liðið missir af Meistaradeildarsæti á þessu tímabili. Collymore er fyrrum leikmaður Liverpool.

Fyrir tímabilið taldi Collymore að Liverpool og Manchester City væru í algjörum sérflokki í deildinni en eftir úrslit gærkvöldsins datt Liverpool niður í sjötta sæti.
„Í hreinskilni sagt, ef þetta lið endar utan Meistaradeildarsætis yrði það risastór hindrun fyrir áratuginn sem framundan er," segir Collymore.

„Leikmenn myndu hugsa sig tvisvar um áður en þeir myndu semja við félagið og þeir leikmenn sem eru hjá félaginu, Mo Salah til dæmis, gætu íhugað hvort tími sé á breytingar í sumar."

„Sjálfstraust liðsins er algjörlega horfið. Það sem þarf að gerast er að eigendur félagsins, Fenway Sports Group, þurfa að opna veskið og lofa miklu. Þeir þurfa að sýna Manchester City og Manchester City að Liverpool hefur líka djúpa vasa."

Þá segir Collymore að leikmenn Liverpool þurfi að halda krísufund innan hópsins og tala hreint út, leiðtogar þurfi að stíga upp.

„Jordan Henderson, James Milner og Virgil van Dijk verða að hafa stjórn á klefanum og leysa vandamálin," segir Collymore.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Man City3+47
2Arsenal2+46
3Hull City2+36
4Chelsea2+26
5Sunderland3+16
6Liverpool3+25
7Newcastle3+25
8Leeds3+15
9Brighton3+34
10Brentford3+24
11Everton2+24
12Man Utd2+13
13Ipswich Town3-43
14Bournemouth3-12
15Nott. Forest3-12
16Fulham3-21
17Coventry3-41
18Crystal Palace3-51
19Tottenham3-51
20Aston Villa2-50
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.