Fotbolti.net
16.05.21 - 17:03
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Byrjunarlið Everton og Sheffield United: Gylfi út fyrir James

Byrjunarlið Everton og Sheffield United: Gylfi út fyrir James
Canon

Mynd: Getty Images

Gylfi Þór Sigurðsson byrjar á bekknum hjá Everton sem tekur á móti Sheffield United í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.
Leikurinn hefst eftir rétt tæpan klukkutíma. Gylfi fer á bekkinn og James Rodriguez byrjar þennan leik í stað íslenska landsliðsmannsins.

Það er eina breyting Everton frá síðasta leik, sem var markalaust jafntefli gegn Aston Villa.

Hjá Sheffield United byrjar hinn 17 ára gamli Daniel Jebbison, sem hefur verið orðaður við Bayern München og Borussia Dortmund. Hann byrjar í fremstu víglínu með David McGoldrick.

Byrjunarlið Everton: Pickford, Holgate, Keane, Godfrey, Coleman, Doucoure, Allan, James, Digne, Richarlison, Calvert-Lewin.
(Varamenn: Virginia, Olsen, Delph, Sigurdsson, Iwobi, Nkounkou, Bernard, Andre Gomes, Davies)

Byrjunarlið Sheffield United: Ramsdale, Baldock, Basham, Egan, Robinson, Stevens, Osborn, Norwood, Fleck, Jebbison, McGoldrick.
(Varamenn: Foderingham, Lundstram, Lowe, Jagielka, Bogle, Brewster, Bryan, Brunt, Gordon)

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Man City10+821
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Everton10+216
6Liverpool9+215
7Brentford9+714
8Leeds10+214
9Bournemouth9+112
10Tottenham10-112
11Aston Villa9-312
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town9-411
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd9-57
19Crystal Palace9-127
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.