Fotbolti.net
16.05.22 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Ítalía í dag - Lazio getur tryggt Evrópudeildarsæti gegn Juve

Maurizio Sarri er að koma sínum mönnum í Evrópudeildina.

Maurizio Sarri er að koma sínum mönnum í Evrópudeildina.

Canon

Mynd: EPA

Það eru tveir leikir á dagskrá í ítalska boltanum í dag og kvöld þar sem enn er barist á öllum vígstöðvum. 

Fiorentina heimsækir Sampdoria í fyrri leiknum í dag og getur tekið Evrópudeildarsætið af AS Roma með sigri. Rómverjar myndu þá detta aftur niður í Sambandsdeildina þar sem þeir eru komnir alla leið í úrslitaleik gegn Feyenoord í ár.

Sampdoria er ekki að berjast um neitt en í kvöld er stórleikur þegar Juventus tekur á móti Lazio.

Sá leikur hefur þýðingu á stöðutöflunni þar sem Lazio getur tryggt sér Evrópudeildarsæti með sigri en Juve siglir lygnan sjó í fjórða sæti.

Leikir dagsins:
16:30 Sampdoria - Fiorentina
18:45 Juventus - Lazio

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio10+1628
2Inter10+1325
3Roma10+1824
4Como10+1023
5Milan10+921
6Frosinone10+1020
7Juventus10+317
8Napoli10+414
9Bologna10+114
10Torino10-213
11Genoa10-413
12Cagliari10-613
13Atalanta10-411
14Lecce10-109
15Parma10-78
16Fiorentina10-88
17Sassuolo10-108
18Monza10-77
19Udinese10-125
20Venezia10-143
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.