Fotbolti.net
16.06.19 - 20:56
Ívan Guðjón Baldursson

Noregur: Matti Villa tapaði gegn sínum gömlu félögum

Noregur: Matti Villa tapaði gegn sínum gömlu félögum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

<b>Rosenborg 3 - 0 Vålerenga</b>
1-0 Samuel Adegbenro ('14)
2-0 Yann-Erik de Lanlay ('66)
3-0 Alexander Soderlund ('86)
Matthías Vilhjálmsson var í liði Vålerenga sem heimsótti Rosenborg í síðasta leik kvöldsins í norska boltanum.

Matthías mætti þar sínum gömlu félögum Rosenborg en tókst ekki að skora. Hann er fastamaður í byrjunarliði Vålerenga og er búinn að skora 3 mörk í 11 leikjum frá komu sinni í janúar.

Noregsmeistararnir voru betri í kvöld og verðskulduðu 3-0 sigur. Þeir eru komnir með 15 stig eftir afleita byrjun á tímabilinu. Þetta var þriðji sigur liðsins í röð í deildinni.

Matthías og félagar eru búnir að tapa tveimur í röð og eru tveimur stigum fyrir ofan Rosenborg.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.