Fotbolti.net
16.06.20 - 14:30
Magnús Már Einarsson

Sölvi Geir með póstnúmerið á fyrirliðabandinu

108 á fyrirliðabandinu.

108 á fyrirliðabandinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sölvi Geir Ottesen, fyrirliði Víkinga, er búinn að setja póstnúmerið 108 á fyrirliðaband sitt.

Sölvi mætti með merkt fyrirliðaband til leiks í 1-1 jafnteflinu gegn Fjölni í gærkvöldi.
Hinn 36 ára gamli Sölvi er uppalinn Víkingur og er stoltur af uppruna sínum í Fossvoginum.

Hann hefur því sett póstnúmerið 108 á fyrirliðabandið en það er póstnúmerið í Fossvoginum.

Sölvi er að spila sitt þriðja tímabil í röð með Víkingi en hann kom heim úr atvinnumennsku í nóvember 2017.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.