Fotbolti.net
16.06.26 - 23:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Utan hóps og þarf að koma sér í betra stand til að spila

Tobias Carlsson.

Tobias Carlsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tobias Carlsson hefur ekki staðið undir væntingum hjá FH á þessu tímabili og var ekki í leikmannahópi liðsins þegar það vann sinn fyrsta deildarleik á tímabilinu gegn Keflavík síðasta sunnudag.

Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, var spurður út í fjarveru Carlsson eftir leik og sagðist þá einfaldlega vilja sjá meira frá sænska varnarmanninum.
Jói Kalli: Það sem er skemmtilegast fyrir mig að sjá sem þjálfara
TENGT EFNI

Jói Kalli: Það sem er skemmtilegast fyrir mig að sjá sem þjálfara

„Hann þarf að koma sér í betra líkamlegt stand og þarf að leggja hart að sér til að geta spilað eins og við viljum spila," sagði Jói Kalli.

„Hann þarf að fókusera á það núna."

Er hann ósáttur við þetta?

„Ég held að menn séu aldrei sáttir við að vera ekki í hóp eða ekki í liðinu. Það sýnir úr hverju menn eru gerðir þegar þeir fá svona mótlæti í andlitið. Ég er viss um að hann er staðráðinn í að komast í betra stand og koma sér aftur í liðið," bætti Jói Kalli við.

Carlsson gekk í raðir FH síðastliðinn vetur og hefur spilað fimm leiki í Bestu deildinni í sumar.
Var ekki í hóp gegn Keflavík í síðasta leik.

Var ekki í hóp gegn Keflavík í síðasta leik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.