Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 16. júlí 2020 15:30
Magnús Már Einarsson
Albrighton fékk ánægjulegt SMS - Líflína í baráttunni
Marc Albrighton.
Marc Albrighton.
Mynd: Getty Images
Marc Albrighton, leikmaður Leicester, horfði ekki á leik Manchester United og Southampton á mánudag af ótta við að sjá sigur United. Hann fagnaði hins vegar vel þegar vinur hans sendi SMS með úrslitum leiksins.

Southampton jafnaði seint í viðbótartíma sem þýðir að Leicester og Manchester United eru jöfn með 59 stig. Leicester er með betri markatölu og er í 4. sætinu í augnablikinu.

Liðin eiga bæði þrjá leiki eftir í ensku úrvalsdeildinni og allt stefnir í rosalega baráttu þeirra á milli um sæti í Meistaradeildinni. Þessi lið mætast einmitt í lokaumferð deildarinnar.

„Við fengum aðra líflínu. Við gætum verið dauðir í þessari baráttu núna. Miðað við úrslitin undanfarið ætti það líklega að vera þannig," sagði Albrighton en Leicester mætir Sheffield United í dag.

„Við þurfum að líta á þetta sem nýtt tækifæri. Þetta er tækifæri til að standa okkur vel."
Athugasemdir
banner
banner