Fotbolti.net
16.08.19 - 20:52
Ívan Guðjón Baldursson

Championship: Fulham hafði betur gegn Huddersfield

Mitrovic fagnar fyrsta marki leiksins með Joe Bryan.

Mitrovic fagnar fyrsta marki leiksins með Joe Bryan.

Canon

Mynd: Getty Images

Huddersfield 1 - 2 Fulham
0-1 Aleksandar Mitrovic ('51)
1-1 Karlan Ahearne-Grant ('57)
1-2 Ivan Cavaleiro ('80)
Huddersfield fékk Fulham í heimsókn í hörkuslag í Championship deildinni í kvöld.

Staðan var markalaus eftir nokkuð jafnan fyrri hálfleik en gestirnir frá London skiptu um gír eftir leikhlé og tóku öll völd á vellinum.

Aleksandar Mitrovic skoraði í upphafi síðari hálfleiks en Karlan Ahearne-Grant jafnaði skömmu síðar.

Gestirnir fengu mikið af færum en boltinn fór ekki inn fyrr en undir lokin þegar Ivan Cavaleiro, sem er að láni frá Wolves, gerði sigurmarkið.

Fulham er með sex stig eftir þrjár umferðir en Huddersfield aðeins eitt. Starf Jan Siewert við stjórnvölinn er talið vera í hættu þó aðeins þrír leikir séu búnir af tímabilinu.

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Middlesbrough14+1128
2Wolves14+827
3Birmingham14+1326
4Stoke City14+526
5Swansea14+526
6West Brom14+525
7Southampton14+1524
8West Ham14+1523
9Sheffield Utd14+322
10Portsmouth14+322
11QPR14+521
12Norwich14+318
13Millwall14-118
14Blackburn14-218
15Bristol City14-318
16Wrexham14-217
17Bolton14-717
18Cardiff City14-115
19Lincoln City14-1015
20Watford14-1014
21Charlton Athletic14-1114
22Burnley14-810
23Derby County14-187
24Preston NE14-185
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.