Fotbolti.net
16.08.19 - 20:32
Ívan Guðjón Baldursson

Þýskaland: Lewandowski bjargaði stigi fyrir Bayern

Þýskaland: Lewandowski bjargaði stigi fyrir Bayern
Canon

Mynd: Getty Images

FC Bayern 2 - 2 Hertha Berlin
1-0 Robert Lewandowski ('24)
1-1 Vedad Ibisevic ('36)
1-2 Marko Grujic ('38)
2-2 Robert Lewandowski ('60, víti)
FC Bayern mætti Hertha Berlin í fyrstu umferð nýs deildartímabils í Þýskalandi. Bayern hefur titil að verja sjöunda árið í röð.

Robert Lewandowski kom heimamönnum yfir í fyrri hálfleik eftir að Serge Gnabry slapp innfyrir vörnina á hægri vængnum og gaf lága fyrirgjöf.

Dodi Lukebakio, sem skoraði þrennu á Allianz Arena á síðustu leiktíð, átti næsta mark en það er þó skráð á Vedad Ibisevic. Skot Lukebakio fyrir utan teig fór í bakið á Ibisevic og í netið og tvemur mínútum síðar var Marko Grujic búinn að bæta við.

Bæjarar skiptu um gír í seinni hálfleik en áttu í erfiðleikum með að brjótast í gegnum þétta vörn gestanna. Lewandowski jafnaði þó leikinn á 60. mínútu þegar hann fiskaði vítaspyrnu með aðstoð myndbandstækni og skoraði sjálfur úr henni.

Meira var ekki skorað þrátt fyrir tilraunir heimamanna. Gestirnir frá Berlín geta verið sáttir með gott stig.

Þetta er í fyrsta sinn síðan 2011 sem Bayern vinnur ekki í fyrstu umferð deildarkeppninnar.

Bundesliga - karlar

#LiðLmunStig
1Bayern8+1918
2Dortmund8+818
3Freiburg8+816
4RB Leipzig8+1115
5Werder8+315
6Leverkusen8+213
7Elversberg8013
8Mainz8010
9Augsburg8+39
10Stuttgart8-19
11Hoffenheim8-29
12Paderborn8-39
13Hamburger7-109
14Köln7-38
15Frankfurt7-78
16Schalke 048-56
17Union Berlin7-126
18Gladbach8-114
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.