Fotbolti.net
16.09.20 - 19:01
Ívan Guðjón Baldursson

Evrópudeildin: Aron og félagar í Hammarby úr leik

Evrópudeildin: Aron og félagar í Hammarby úr leik
Canon

Mynd: Hammarby

<b>Hammarby 0 - 3 Lech Poznan</b>
0-1 Pedro TIba ('55)
0-2 Jakub Kaminski ('89)
0-3 Filip Marchwinski ('93)
<u>Rautt spjald:</u> Jeppe Andersen, Hammarby ('63)
Aron Jóhannsson lék allan leikinn er Hammarby var slegið úr leik í undankeppni Evrópudeildarinnar.

Hammarby mætti Lech Poznan og var staðan markalaus þar til á 55. mínútu þegar Pedro Tiba kom knettinum í netið.

Skömmu síðar lét Jeppe Andersen reka sig útaf og voru Aron og félagar inni í leiknum allt þar til á lokamínútunum, þegar Jakub Kaminski og Filip Marchwinski gerðu út um leikinn fyrir Pólverjana.

Hollenska félagið Willem II sló þá Niedercorn frá Lúxemborg úr leik með fimm mörkum gegn engu. Staðan er markalaus í leikhlé hjá B36 Þórshöfn og velska félaginu TNS.

Heimamenn í Þórshöfn hafa verið betri í leiknum með sex marktilraunir gegn engri.

Niedercorn 0 - 5 Willem II

B36 Torshavn 0 - 0 TNS

HÁLFLEIKUR
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.