16.09.26 - 10:30
Elvar Geir Magnússon
Ísland þarf toppsætið til að vera öruggt með að enda ekki í neðstu deild
Landsliðshópur opinberaður í hádeginu

Íslenska landsliðið fagnar á Laugardalsvelli.

Mynd: Helgi Þór Gunnarsson

Landsliðsþjálfararnir Davíð Snorri Jónasson og Arnar Gunnlaugsson.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Það eru tíu dagar í að Ísland hefji leik í riðli sínum í C-deild Þjóðadeildarinnar eftir að hafa fallið úr B-deildinni í síðustu útgáfu keppninnar. Eistland, Lúxemborg og Búlgaría eru með okkur í riðli.
Framkvæmdanefnd UEFA ákvað á dögunum að fækka deildunum í Þjóðadeildinni úr fjórum í þremur frá og með 2028. Nýtt fyrirkomulag verður tekið í notkun sem líkist Meistaradeildarfyrirkomulaginu svo þú ert ekki að mæta sömu þjóð heima og úti.
Til að vera öruggt með að komast upp í B-deildina og forðast það að leika í neðstu deild í næstu útgáfu verður íslenska liðið því að vinna riðilinn sem það er að fara í núna.
Ef annað sætið verður niðurstaðan mun Ísland fara í umspil gegn liði úr B-deild um hvort liðið verði í B-deildinni.

TENGT EFNI
Mögulegur landsliðshópur - Einn nýliði og hvernig verður fyllt í skarð Sverris?
Komandi landsleikjagluggi mun innihalda fjóra leiki. Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari tilkynnir í hádeginu leikmannahópinn. Ísland tekur á móti Eistlandi á Laugardalsvelli laugardaginn 26. september. Svo koma leikir gegn Lúxemborg, Búlgaríu og við Eistland á útivelli.
Riðlinum lýkur svo í nóvember með leikjum Íslands við Búlgaríu á útivelli og Lúxemborg á heimavelli; 13. og 16. nóvember.

Mynd: UEFA