Fotbolti.net
16.09.26 - 14:59
Elvar Geir Magnússon

U21 landsliðshópurinn - Mjög öflugir sóknarmenn

Daníel Tristan Guðjohnsen og Viktor Bjarki Daðason.

Daníel Tristan Guðjohnsen og Viktor Bjarki Daðason.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Lúðvík Gunnarsson og Ólafur Helgi Kristjánsson, landsliðsþjálfarar U21 karla, hafa valið leikmannahóp sem leikur þrjá leiki í undankeppni EM 2027 í september og október.

Ísland mætir Frakklandi og Sviss á Pepsi vellinum í Laugardal 25. og 29. september og svo Færeyjum ytra 6. október.

Ísland er í þriðja sæti riðilsins eftir sjö leiki. Frakkland situr í efsta sæti, Sviss í öðru og Færeyjar í fjórða sæti.

Í hópnum eru öflugir sóknarmenn sem hafa verið í A-landsliðinu eða að banka á dyrnar þar. Þar á meðal er Viktor Bjarki Daðason hjá FCK.

„Viktor Bjarki er að koma úr erfiðum meiðslum en er að fá góðar mínútur hjá FCK núna. Við erum alltaf að velta því fyrir okkur hvað hentar ungum leikmönnum hverju sinni og þeirra framtíð. Miðað við hvar hann er staddur núna teljum við best fyrir hann og fleiri að taka slaginn með U21 landsliðinu," sagði Arnar Gunnlaugsson, þjálfari A-landsliðsins, á fréttamannafundi.

Á fundinum tjáði hann sig einnig um Daníel Tristan Guðjohnsen sem á sex A-landsleiki að baki en er í U21 hópnum.

„Hann gekk í gegnum erfitt tímabil og ég ætlast til að hann mæti í þetta verkefni sem A-landsliðsmaður og sýni að hann sé klassa fyrir ofan þennan aldurshóp," sagði Arnar.
Hópurinn
Lúkas J. Blöndal Petersson - TSG 1899 Hoffenheim
Halldór Snær Georgsson - KR
Ásgeir Orri Magnússon - Keflavík
Hilmir Rafn Mikaelsson - SK Sigma Olomouc
Eggert Aron Guðmundsson - SK Brann
Hlynur Freyr Karlsson - Breiðablik
Benoný Breki Andrésson - Stockport County
Daníel Freyr Kristjánsson - Lyngby Boldklub
Helgi Fróði Ingason - Helmond Sport
Baldur Kári Helgason - FH
Nóel Atli Arnórsson - Aalborg BK
Haukur Andri Haraldsson - ÍA
Tómas Orri Róbertsson - FH
Kjartan Már Kjartansson - SK Brann
Júlíus Mar Júlíusson - Kristiansund BK
Daníel Tristan Guðjohnsen - Malmö FF
Freyr Sigurðsson - Fram
Hlynur Þórhallsson - Þróttur R.
Galdur Guðmundsson - KR
Viktor Bjarki Daðason - FC Köbenhavn
Amin Cosic - Viking FK
Davíð Helgi Aronsson - Lyngby Boldklub
Stígur Diljan Þórðarson - Víkingur R.
Amin Cosic.

Amin Cosic.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.