16.11.26 - 22:01
Brynjar Ingi Erluson
Arsenal-maðurinn sló annað met með landsliðinu

Max Dowman er gríðarlegt efni

Mynd: EPA

Max Dowman er gríðarlegt efni

Mynd: EPA
Arsenal-maðurinn Max Dowman skráði nafn sitt í sögubækur U21 árs landsliðs Englands í annað sinn á skömmum tíma þegar hann skoraði í 3-2 sigri á Frökkum í vináttulandsleik í kvöld.

TENGT EFNI
Dowman tók met af Jude Bellingham
Hinn 16 ára gamli Dowman lék sinn fyrsta leik með U21 árs landsliði Englands í síðasta leik þegar hann kom inn af bekknum og þótti standa sig með eindæmum vel.
Hann sló þar með met Jude Bellingham og varð yngsti leikmaðurinn í sögu enska U21 árs landsliðsins.
Dowman fékk síðan tækifæri í byrjunarliðinu í vináttulandsleik gegn Frökkum í kvöld og lét heldur betur til sín taka. Hann skoraði sitt fyrsta mark fyrir liðið á 89. mínútu eftir sendingu frá Harrison Armstrong og tryggði Englendingum sigurinn.
Þar með varð hann einnig yngsti markaskorari í sögu landsliðsins og er því óhætt að segja að þetta hafi verið viðburðarík vika hjá Dowman, sem heldur nú aftur til Arsenal með tvö met í farteskinu.
Arsenal mætir Newcastle United um helgina, en Dowman verður þó ekki með í þeim leik. Hann á eftir að taka út síðasta leikinn í þriggja leikja banninu sem hann fékk eftir að hafa verið rekinn af velli gegn Fleetwood Town í deildabikarnum í síðasta mánuði.

The winning goal ?
— England (@England) November 16, 2026
Max Dowman has his first goal for our #YoungLions! https://t.co/gb4rLaXXBV