Fotbolti.net
16.11.26 - 15:48
Elvar Geir Magnússon

Byrjunarlið Íslands - Hjörtur og Brynjólfur inn

Aron Einar meðal varamanna

Brynjólfur Andersen Willumsson.

Brynjólfur Andersen Willumsson.

Canon

Mynd: KSÍ

Eimskip
Ísland mætir Lúxemborg í síðasta leik sínum í riðlakeppni C-deildar Þjóðadeildarinnar klukkan 17 á Laugardalsvelli. Þar getur Ísland innsiglað sigur í riðlinum og komist beint upp í B-deildina að nýju.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum

Stefán Teitur Þórðarson og Kristall Máni Ingason sem byrjuðu í 5-0 sigri Íslands í Búlgaríu eru á meiðslalistanum. Arnar Gunnlaugsson gerir tvær breytingar á byrjunarliðinu. Hjörtur Hermannsson og Brynjólfur Willumsson koma inn í liðið.

Aron Einar Gunnarsson getur jafnað leikjamet Birkis Bjarnasonar, fyrrum liðsfélaga síns, spili hann í leiknum. Aron byrjar á bekknum.


Jafntefli dugar Íslandi til að vinna riðilinn vegna öflugrar markatölu og þá er ljóst að Ísland endar alltaf í efsta sæti ef Eistland vinnur ekki Búlgaríu í leik sem fram fer á sama tíma. Það er mikilvægt fyrir Ísland að sigra á morgun af fleiri ástæðum en bara að tryggja sér upp í B-deild. Með því að vinna riðilinn verðum við í þriðja styrkleikaflokki þegar dregið verður í undankeppni EM í byrjun desember og sigur styrkir stöðu okkar þegar kemur að möguleika á bakdyraleið á EM ef við náum ekki sæti í gegnum undankeppnina.
Hjörtur Hermannsson.

Hjörtur Hermannsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið Íslands - Hjörtur og Brynjólfur inn
Canon

Mynd: KSÍ

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.