Fotbolti.net
Einn stærsti sigur Íslands kom gegn Búlgaríu - Hvar stendur hann sögulega séð?

16.11.26

Einn stærsti sigur Íslands kom gegn Búlgaríu - Hvar stendur hann sögulega séð?

ÍVAR BJÖRGVINSSON

Íslenska karlalandsliðið vann stórglæsilegan 5-0 sigur á Búlgaríu í Þjóðadeildinni á föstudagskvöldið þar sem Andri Lucas Guðjohnsen fór á kostum og skoraði þrennu. Sigurinn var einn sá stærsti í sögu íslenska landsliðsins þegar kemur að markamun, en aðeins einu sinni áður hefur Ísland unnið stærri sigur í opinberum keppnisleik.

Íslenska landsliðið hefur í gegnum tíðina unnið ýmsa eftirminnilega sigra, en þeir hafa ekki alltaf verið sérstaklega stórir þegar horft er til markamunar. Sögulegir sigrar gegn Englandi, Hollandi og Króatíu voru til að mynda allir með eins eða tveggja marka mun, en í nokkrum öðrum leikjum hefur íslenska liðið einfaldlega valtað yfir andstæðinga sína.

Í tilefni af sigrinum gegn Búlgaríu tók Fótbolti.net saman sjö stærstu sigra íslenska karlalandsliðsins í opinberum keppnisleikjum frá upphafi. Vináttulandsleikir ekki með í samantektinni en hér er aðeins horft til þeirra sigra sem unnust á stærsta markamuni. Athygli vekur að fimm af sjö leikjunum eru gegn Liechtenstein, en engu að síður er að finna ýmsar áhugaverðar sögur á bak við þessa stórsigra.

Fleiri fréttir

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.