Fotbolti.net
16.11.26 - 10:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Er með tilboð úr Bestu deildinni en kannar fyrst möguleikana á Kýpur

Er með tilboð úr Bestu deildinni en kannar fyrst möguleikana á Kýpur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Selfyssingurinn Guðmundur Tyrfingsson (2003) er með lausan samning eftir að hafa átt gott tímabil með Fylki í Lengjudeildinni.

Albert Brynjar Ingason sagði frá því í Dr. Football fyrir helgi að Guðmundur væri nú á Kýpur, væri að æfa þar með liði í þriðju efstu deild, Ethnikos Assias, og væri, með aðstoð forseta félagsins, að kanna möguleikann á því að fá samning í efri deild.

Albert sagði einnig frá því að Keflavík og Þór hefðu boðið Guðmundi samning.
Gummi Tyrfings hefur rætt við Keflavík
TENGT EFNI

Gummi Tyrfings hefur rætt við Keflavík

Í samtali við Fótbolta.net staðfestir Guðmundur að hann sé að kanna möguleika sína á Kýpur.

„Ég er að æfa með liði hér á Kýpur, er að kanna mína möguleika hérna og hvort þeir passi fyrir mig áður en ég tek ákvörðun um félag á Íslandi," segir sóknarmaðurinn sem skoraði þrettán mörk í Lengjudeildinni og lagði upp tvö samkvæmt Sofascore. Hann bætti svo við tveimur mörkum til viðbótar í Lengjudeildarumspilinu.

Hann staðfestir að bæði Þór og Keflavík hafi boðið sér samning og segist hafa átt samtöl við tvo aðra þjálfara á Íslandi sem hafa sýnt sér áhuga.

Aron Baldvin Þórðarson, nýr þjálfari Fylkis, sagði þá í hlaðvarpsþættinum Einn Tveir að hann væri bjartsýnn á að ná að halda Guðmundi í Fylki.
Er með tilboð úr Bestu deildinni en kannar fyrst möguleikana á Kýpur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.