Fotbolti.net
16.11.26 - 21:11
Brynjar Ingi Erluson

Frábærar fréttir fyrir Arsenal

Declan Rice verður hjá Arsenal til 2031

Declan Rice verður hjá Arsenal til 2031

Canon

Mynd: EPA

Stuðningsmenn Arsenal fengu heldur betur góðar fréttir í kvöld, en greint hefur verið frá því að lykilmennirnir Declan Rice og Jurrien Timber hafi báðir náð samkomulagi við félagið um nýja samninga.
Rice hefur átt í viðræðum við Arsenal um nýjan samning um nokkurt skeið, en hann hefur verið einn mikilvægasti leikmaður liðsins síðan hann kom frá West Ham árið 2023.

Hann varð Englandsmeistari með Arsenal á síðustu leiktíð og komst jafnframt í úrslit Meistaradeildarinnar.

Á dögunum bárust fregnir af því að stutt væri í samkomulag milli Rice og Arsenal, en samkvæmt Athletic hafa aðilar nú náð saman og mun miðjumaðurinn skrifa undir nýjan samning sem gildir til ársins 2031.

Þá hefur Hollendingurinn Timber einnig náð samkomulagi við Arsenal um framlengingu á sínum samningi, en hann hefur ekki síður verið mikilvægur fyrir liðið.

Timber kom frá Ajax sama sumar og Rice, en meiðsli héldu honum frá keppni stærstan hluta fyrsta tímabilsins. Hann hefur hins vegar farið á kostum undanfarin þrjú tímabil og eru þetta því frábærar fréttir fyrir stuðningsmenn Arsenal.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.