Fotbolti.net
16.11.26 - 10:00
Víðir Sigurðsson

Guðjón Þórðarson - Fimmtíu ára ferill

Guðjón Þórðarson er samofinn sögu Skagamanna. Hann átti þátt í 15 af 17 stórum titlum sem ÍA vann á árunum 1974 til 1996.

Guðjón Þórðarson er samofinn sögu Skagamanna. Hann átti þátt í 15 af 17 stórum titlum sem ÍA vann á árunum 1974 til 1996.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Knattspyrnuferill Guðjóns Þórðarsonar spannaði hálfa öld, frá því hann kom fyrst inn í meistaraflokkslið Skagamanna, 16 ára gamall, árið 1972 og þar til hann stýrði Víkingi í Ólafsvík í sínum síðasta leik haustið 2022, þremur dögum eftir 67 ára afmælið.

Guðjón lést 13. nóvember síðastliðinn, 71 árs að aldri, eftir að hafa glímt við veikindi síðustu árin. Hann fylgdist eftir sem áður grannt með fótboltanum og núna síðsumars hringdi hann í undirritaðan með skemmtilega ábendingu sem varð að frétt hérna á fótbolti.net. Hann sagði við það tækifæri að það versta væri að komast ekki á völlinn en vonaðist til þess að úr því rættist með tíð og tíma.

En nú hefur Guðjón Þórðarson horft á sinn síðasta fótboltaleik og hann kvaddi einmitt föstudaginn þrettánda þegar sonarsonur hans, Ísak Bergmann Jóhannesson, lék með íslenska landsliðinu í glæsilegum sigri gegn Búlgaríu í Plovdiv, 5-0.

Bakvörðurinn sem vann tíu stóra titla
Guðjón setti svip sinn á íslenska fótboltann, framan af sem eitilharður bakvörður í liði ÍA sem vann 10 stóra titla með félaginu, og síðar sem afar sigursæll þjálfari, heima og erlendis. Guðjón vann fjóra Íslandsmeistaratitla og fjóra bikarmeistaratitla sem þjálfari KA, ÍA og KR áður en hann var ráðinn til Knattspyrnusambands Íslands sem landsliðsþjálfari karla og þar sló hann í gegn hjá íslensku þjóðinni með frábærum úrslitum í undankeppni EM.

Þar á meðal jafntefli gegn nýkrýndum heimsmeisturum Frakklands á Laugardalsvellinum en smitaðir af áræðni og sigurvilja Guðjóns báru landsliðsmenn Íslands enga virðingu fyrir öflugum mótherjum, Frakklandi, Rússlandi og Úkraínu, og börðust við þá um sæti á EM 2000 fram í síðasta leik undankeppninnar.

Í kjölfarið gerðist Guðjón knattspyrnustjóri á Englandi, lengst af hjá Stoke City þar sem hann vann neðrideildabikarinn og kom liðinu upp í B-deildina, en stýrði líka liðum Barnsley, Notts County og Crewe. Um sama leyti þjálfaði hann í nokkra mánuði í Noregi, síðan aftur á Íslandi, en hans síðustu áfangastaðir á löngum ferli voru Runavík í Færeyjum og Ólafsvík á Snæfellsnesi.

Aðeins Teitur og Bjarni með fleiri leiki
Guðjón stýrði liðum sínum í 585 deildaleikjum, í sjö mismunandi deildum í fjórum löndum. Þá eru ótaldir leikir í alls kyns mótum, sem og landsleikir, en karlalandslið Íslands lék 24 leiki undir hans stjórn. Aðeins tveir íslenskir þjálfarar hafa fleiri leiki á bakinu, Teitur Þórðarson og Bjarni Jóhannsson. Af þessum leikjum Guðjóns eru 282 erlendis og Teitur er sá eini sem á fleiri leiki að baki sem þjálfari erlendra liða.

Þegar við bætast 395 mótsleikir sem leikmaður, þar af 216 í efstu deild, má ljóst vera að Guðjón var á hliðarlínunni eða inni á vellinum í vel ríflega eitt þúsund knattspyrnuleikjum á þessum 50 ára ferli.

Sextán ára í byrjunarliðinu
Meistaraflokksferillinn á Akranesi hófst 19. júní 1972 þegar sextán ára gamall óþekktur strákur var í byrjunarliði Skagamanna sem beið lægri hlut fyrir verðandi Íslandsmeisturum Fram, 3-0. Guðjón Þórðarson fékk tækifæri í þremur öðrum leikjum á Íslandsmótinu þetta sumar, öllum áður en hann hélt upp á bílprófsafmælið í september.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.