Fotbolti.net
16.11.26 - 22:26
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Hrósaði Hirti í hástert - „Hefur eflaust verið mjög svekktur"

Hjörtur í leiknum í kvöld.

Hjörtur í leiknum í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Hjörtur Hermannsson kom beint inn í byrjunarliðið hjá íslenska landsliðinu gegn Lúxemborg í Þjóðadeildinni í kvöld eftir að hafa verið kallaður inn í hópinn fyrir nokkrum dögum.

Hjörtur, sem hefur verið að leika vel með Gautaborg í Svíþjóð, var traustur í hjarta varnarinnar við hlið Daníels Leó Grétarssonar.
Hjörtur fékk hrós frá Arnari Gunnlaugssyni, landsliðsþjálfara Íslands.

„Aron var alltaf hugsaður sem mjög flottur leikmaður til að koma inn á og loka leikjum í þessum landsleikjaglugga. Hann gerði það ótrúlega vel, bæði í hálftímanum sínum í síðasta leik og í þessum leik," sagði Arnar en Hjörtur var valinn í byrjunarliðið fram yfir Aron Einar Gunnarsson.

„En ég gæti ekki borið nægilega mikla virðingu fyrir því sem Hjörtur hefur gert. Hann kemur inn í erfitt kerfi þar sem hann þarf að gera mjög marga hluti, bæði með og án bolta. Hann var frábær í kvöld og hefur verið virkilega öflugur fyrir mig."

„Hann er alltaf boðinn og búinn að mæta. Hann var meiddur í síðasta glugga og hefur eflaust verið mjög svekktur með að vera ekki valinn í þennan glugga. En þegar símtalið kemur er hann alltaf klár í að mæta fyrir hönd þjóðarinnar og gera sitt besta. Þetta var frábært kvöld hjá honum."

Er orðið erfiðara að horfa fram hjá honum eftir svona frammistöðu?

„Já, ég var einmitt að segja það áðan. Það besta við þennan landsleikjaglugga, fyrir utan úrslitin, er hvað við höfum fengið marga leikmenn inn í landsliðið. Við höfum stækkað hópinn gríðarlega mikið."

„Ef þú hefðir spurt mig fyrir keppnina hvort við gætum verið án Sverris, sem hefur kannski verið okkar sterkasti varnarmaður, og Alberts, sem er einn okkar sterkasti sóknarmaður með boltann, og samt skorað 15 mörk og aðeins fengið eitt á okkur, þá veit ég ekki hvort ég hefði trúað því. Breiddin í liðinu er orðin gríðarlega mikil og það er leiðin til að ná góðum árangri. Landsleikjagluggar verða alltaf erfiðari og erfiðari. Það þarf fleiri leikmenn, góðar skiptingar og að geta haldið dampi í gegnum leikina. Það er mjög ánægjulegt hvað hópurinn hefur verið sterkur," sagði Arnar.
Hjörtur var kallaður inn í hópinn fyrir nokkrum dögum.

Hjörtur var kallaður inn í hópinn fyrir nokkrum dögum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.