Fotbolti.net
16.11.26 - 12:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Lykilmaður framlengir í Keflavík

Lykilmaður framlengir í Keflavík
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Keflavík hefur tilkynnt að félagið og Marin Brigic hafi náð samkomulagi um að hann verði hjá félaginu til ársins 2029. Fyrri samningur hefði runnið út eftir næsta tímabil.

Brigic er 26 ára króatískur miðvörður sem kom til félagsins frá Króatíu fyrir tímabilið 2025.

Hann hjálpaði Keflavík upp úr Lengjudeildinni í fyrra og í ár spilaði hann 23 leiki, byrjaði þá alla, þegar Keflavík kom á óvart og endaði í sjötta sæti Bestu deildarinnar. Í leikjunum 23 skoraði Brigic tvö mörk.

Þegar tölfræði Brigic er skoðuð á Fotmob sést að boltinn var aldrei tekinn af honum á tímabilinu sem er nokkuð vel af sér vikið.
„Það eru afar ánægjuleg tíðindi að Marin hafi ákveðið að binda framtíð sína við félagið og verður hann áfram mikilvægur hluti af leikmannahópi Keflavíkur á komandi árum," segir í tilkynningu Keflavíkur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.