Fotbolti.net
16.11.26 - 14:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Mikill heiður að Breiðablik sýndi áhuga

,,Gríðarlega þakklátur og ánægður að vera þjálfari hjá uppeldisfélaginu"

Ánægður að vera þjálfari hjá uppeldisfélaginu.

Ánægður að vera þjálfari hjá uppeldisfélaginu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þjálfari Aftureldingar, Magnús Már Einarsson, var orðaður við Breiðablik í síðasta mánuði og greint var frá því að Breiðablik hefði sett sig í samband við Aftureldingu um að fá leyfi til að ræða við Magnús. Það fékkst ekki.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net var Magnús með möguleika á því að losna sjálfur frá Aftureldingu en nýtti hann ekki. Fótbolti.net ræddi við þjálfarann í dag.
Breiðablik vildi Magga en fékk nei frá Aftureldingu
TENGT EFNI

Breiðablik vildi Magga en fékk nei frá Aftureldingu

Það voru fréttir af því að Breiðablik vildi ræða við þig. Hvað fannst þér um það? Vildir þú ekki taka það samtal lengra?

„Það er auðvitað mikill heiður að stórt félag eins og Breiðablik sýni áhuga en í hreinskilni sagt hugsaði ég ekki mikið um það," segir Maggi.

„Ég er gríðarlega ánægður og þakklátur fyrir að vera þjálfari hjá uppeldisfélagi mínu Aftureldingu. Það hefur verið ótrúlega gaman að taka þátt í uppgangi með liðinu undanfarin ár og sjá fótboltaáhugann í Mosfellsbæ vaxa gríðarlega mikið."

Maggi tók við sem þjálfari Aftureldingar eftir tímabilið 2019 en hafði áður verið aðstoðarþjálfari liðsins. Liðið náði alltaf betri og betri árangri undir stjórn Magga, komst í Bestu deildina 2025 en féll aftur. Á liðnu tímabili vann liðið Lengjudeildina og komst í úrslitaleik bikarsins.

„Við viljum meira og vonandi leggjast allir hjá félaginu og allir bæjarbúar á eitt og hjálpa Aftureldingu ennþá lengra í Bestu deildinni næsta sumar. Það hefur verið mikil gleði í kringum Aftureldingu undanfarin ár og við ætlum að taka það með okkur áfram inn í Bestu deildina næsta sumar," bætti þjálfarinn við.
Mikill heiður að Breiðablik sýndi áhuga
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lék á sínum tíma með Aftureldingu.

Lék á sínum tíma með Aftureldingu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Raggi Óla

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.