Fotbolti.net
16.11.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson

Þjóðadeildin í dag - Þýskaland og Færeyjar þurfa sigra

Þjóðadeildin í dag - Þýskaland og Færeyjar þurfa sigra
Canon

Mynd: EPA

Það verða tíu leikir spilaðir í Þjóðadeildinni í dag og í kvöld og er mikil spenna í öllum deildum.
Í A-deildinni þurfa lærlingar Jürgen Klopp í landsliði Þýskalands að hafa betur gegn nágrönnum sínum frá Hollandi og vonast eftir hagstæðum úrslitum í Grikklandi á sama tíma.

Þjóðverjar eru með 8 stig eftir 5 umferðir, jafnir Grikkjum á stigum í baráttunni um annað sætið. Grikkir eru þó með betri árangur í innbyrðisviðureignum og því þarf Þýskaland að sigra á heimavelli og treysta á að Serbar eigi góðan leik í Volos og næli sér í að minnsta kosti stig.

Hollendingum nægir jafntefli til að tryggja sér toppsæti riðilsins.

Í B-deildinni eru Slóvenía og Skotland að berjast um annað sæti síns riðils og eru Slóvenarnir með forskot fyrir lokaumferðina, auk þess að eiga auðveldari leik á pappír.

Í C-deildinni eiga Færeyjar úrslitaleik við Moldóvu í Þórshöfn. Takist frændum okkar að fara með sigur af hólmi ná þeir öðru sætinu af Moldóvu og fá umspilsleik um sæti í B-deildinni fyrir næstu leiktíð.

Strákarnir okkar í íslenska landsliðinu spila þá við Lúxemborg og nægir þeim stig til að tryggja toppsæti riðilsins og þar með sæti í B-deild.

Þjóðadeildin A
19:45 Þýskaland - Holland
19:45 Grikkland - Serbía

Þjóðadeildin B
19:45 Norður Makedónía - Slóvenía
19:45 Sviss - Skotland

Þjóðadeildin C
15:00 Færeyjar - Moldóva
15:00 Kasakstan - Slóvakía
17:00 Eistland - Búlgaría
17:00 Ísland - Lúxemborg

Þjóðadeildin D
17:00 Litáen - Liechtenstein
19:45 Gíbraltar - Malta
Þjóðadeildin í dag - Þýskaland og Færeyjar þurfa sigra
Canon

Mynd: EPA

Þjóðadeildin í dag - Þýskaland og Færeyjar þurfa sigra
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.