Yfirferðin með Elízu Gígju: Óvænt úrslit á Spáni

Sandy Baltimore skoraði eina mark Chelsea

Mynd: EPA

Ayaka Yamashita var send í sturtu

Mynd: EPA

Alessia Russo lagði upp á Frida Maanum

Mynd: EPA

Mary Earps varði vel í London

Mynd: EPA

Maya Le Tissier skoraði í sínum 150. leik

Mynd: EPA

Beata Olsson skoraði tvö fyrir Liverpool

Mynd: EPA

Renee van Asten bjargaði Barcelona

Mynd: EPA

Sandy Baltimore skoraði eina mark Chelsea

Mynd: EPA

Stórleikur umferðarinnar í Englandi fór fram í London þegar Chelsea og Manchester City mættust í toppslag. Liðin hafa skipt toppsætinu á milli sín það sem af er tímbili og var ljóst fyrir leikinn að liðið sem bæri sigur úr býtum færi á toppinn. Bæði lið fengu góð færi í fyrri hálfleiknum en tókst ekki að koma boltanum í netið fyrr en á fjórðu mínútu uppbótartímans þegar að Sandy Baltimore fékk boltann við vítateigshornið hægra megin og þrumaði boltanum á markið í samskeytin nær. Ekkert mark leit dagsins ljós í seinni hálfleiknum en Ayaka Yamashita, markamaður City, fékk rautt spjald eftir skógarhlaup langt út úr teignum sínum og Chelsea sigldu sigrinum heim einum fleiri og fara því aftur á topp deildarinnar. Chelsea eru nú með 26 stig en City fylgja fast á hælana á þeim með 25 stig.
London City reyna að halda í við toppinn
Í þriðja sæti með 20 stig koma svo London City Lionesses. Þær mættu Arsenal um helgina sem hafa verið á fínu róli undanfarnar vikur. Arsenal komust yfir á 10. mínútu með marki frá Frida Maanum sem kom á fleygiferð inn á teiginn þar sem Alessio Russo fann hana og eftirleikurinn auðveldur. London City voru þó ekki lengi að jafna en aðeins einni mínútu seinna lék Isobel Goodwin illa á varnarmenn Arsenal og kláraði vel. Bæði lið fengu færi til að klára leikinn en Mary Earps og Misa vörðu báðar vel og liðin deildu með sér stigunum í þetta skiptið.
Á eftir London City koma Manchester United sem fengu lánlaust Crystal Palace lið í heimsókn. Heimakonur komust yfir á 18. mínútu með marki frá Maya Le Tissier sem fékk boltann langt fyrir utan teiginn og lét bara vaða og boltinn söng í netinu, frábært mark í hennar 150. leik fyrir klúbbinn. Elisabeth Terland tvöfaldaði forystuna þegar Jessica Park þræddi hana í gegn og hún kláraði snyrtilega fram hjá Yanez í markinu.
Liverpool sóttu langþráðan sigur
Palace eru í 12. sæti eins og er með níu stig, tveimur stigum á eftir Brighton og Liverpool sem mættust í Brighton um helgina. LIverpool þurfti aðeins fjórar mínútur til þess að setja fyrsta markið eftir gott útspil. Boltinn endaði inná markteignum þar sem hin sænska Beata Olsson gerði vel í að koma boltanum í markið. Liverpool byrjuðu síðari hálfleikinn af sama krafti en í þetta skiptið var það landi Olsson, Cornelia Kapocs, sem kom boltanum í netið eftir hræðileg mistök Brighton í útspili frá markmanni. Olsson var svo aftur á ferðinni á 78. mínútu þegar hún fylgdi eftir sínu eigin skoti og sem var varið og kláraði leikinn endanlega fyrir Liverpool. Mjög kærkominn sigur hjá þeim rauðu sem höfðu ekki unnið leik í deildinni frá 27. september. Bæði Bítlaborgarliðin spiuðu útileiki um helgina en Everton heimsóttu Tottenham til London í leik sem endaði með 0-0 jafntefli. Tottenham var betri aðilinn í leiknum og fékk betri færi en tókst ekki að koma boltanum í netið.
Barcelona réttnáði stigi
Á Spáni voru heldur betur óvænt úrslit þegar Barcelona heimsóttu Deportivo de A Coruna í leik sem endaði með 1-1 jafntefli. Deportivo, sem eru í 10. sæti spænsku deildarinnar, komust yfir í leiknum á 48. mínútu með marki frá Vega Montesinos þegar hún fékk boltann alein á fjær og skoraði í svo gott sem opið markið. Þær virtust vera að sigla heim ótrúlegum sigri á meisturunum en Renee van Asten skoraði frábært skallamark á tólftu mínútu uppbótartíma og Barcelona sóttu eitt stig.
Real Madrid tókst ekki að nýta sér misstig Barcelona en þær gerðu einnig jafntefli og það á heimavelli gegn Levante Badalona sem eru í fallsæti. Eftir rólegan fyrri hálfleik þar sem fyrsta markið kom í uppbótartíma þegar Lucía Martíenz skoraði fyrir gestina. Filippa Angeldal jafnaði metin á 61. mínútu en gestirnir komust aftur yfir fimm mínútum seinna. Á 68. mínútu jafnaði Real Madrid aftur þegar Linda Caicedo skoraði. Lotte Keukelaar kom Real Madrid yfir í fyrsta skipti í leiknum á 76. mínútu en Irina Uribe jafnaði metin á ný sex mínútum síðar. Staðan var þá orðin 3-3 og þar við sat.

Ayaka Yamashita var send í sturtu

Mynd: EPA

Alessia Russo lagði upp á Frida Maanum

Mynd: EPA

Mary Earps varði vel í London

Mynd: EPA

Maya Le Tissier skoraði í sínum 150. leik

Mynd: EPA

Beata Olsson skoraði tvö fyrir Liverpool

Mynd: EPA

Renee van Asten bjargaði Barcelona

Mynd: EPA
