17.01.20 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía um helgina - Sjö leikir í beinni útsendingu

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Það er fjörug helgi framundan á Ítalíu og mikið af áhugaverðum leikjum. 20. umferð deildartímabilsins verður spiluð yfir helgina og mun <i>Stöð 2 Sport</i> sýna frá sjö leikjum í beinni útsendingu.
Ekki er spilað í dag vegna bikarleikja í miðri viku og hefst fjörið því á morgun, þegar toppbaráttulið Lazio tekur á móti fallbaráttuliði Sampdoria.
Sassuolo og Torino eigast svo við áður en lærisveinar Gennaro Gattuso í Napoli, sem eru búnir að tapa tveimur deildarleikjum í röð, taka á móti Fiorentina.
Á sunnudaginn getur Milan blandað sér í baráttuna um 6. sætið, það síðasta sem gefur þátttökurétt í Evrópudeildina, með sigri gegn Udinese, sem er búið að vinna þrjá leiki í röð og er aðeins einu stigi á eftir Milan.
Inter heimsækir þá Lecce og getur endurheimt toppsætið af Juventus með sigri. Ítalíumeistarar Juve taka á móti Parma í kvöldleiknum.
Laugardagur:
14:00 Lazio - Sampdoria (Stöð 2 Sport 2)
17:00 Sassuolo - Torino (Stöð 2 Sport 2)
19:45 Napoli - Fiorentina (Stöð 2 Sport 2)
Sunnudagur:
11:30 AC Milan - Udinese (Stöð 2 Sport)
14:00 Lecce - Inter (Stöð 2 Sport)
14:00 Brescia - Cagliari
14:00 Bologna - Verona
17:00 Genoa - Roma (Stöð 2 Sport)
19:45 Juventus - Parma (Stöð 2 Sport 3)
Mánudagur:
19:45 Atalanta - SPAL