Fotbolti.net
17.01.25 - 11:00
Elvar Geir Magnússon

Áslaug Dóra er gengin í raðir Víkings (Staðfest)

Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir.

Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir.

Canon

Mynd: Víkingur

Hertz
Varnarmaðurinn Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir er gengin í raðir Víkings og hefur skrifað undir samning til tveggja ára. Hún yfirgaf sænska félagið Örebro í nóvember eftir að liðið féll úr sænsku úrvalsdeildinni.

„Við fall félagsins úr deildinni í haust virkjaðist ákvæði um riftun samninga við alla leikmenn og lukkulega fyrir okkur Víkinga er hún nú komin í Hamingjuna," segir í tilkynningu Víkings.

Áslaug fór til Örebro frá uppeldisfélaginu Selfossi þar sem hún varð bikarmeistari. Hún er fædd árið 2003 og á að baki sex leiki með U23 landsliðinu.
„Áslaug Dóra hefur lengst af spilað sem miðvörður, en einnig á miðjunni og hefur skorað nokkur mörk, bæði fyrir félags- og landslið. Knattspyrnudeild Víkings býður Áslaugu Dóru Sigurbjörnsdóttir innilega velkomna í Hamingjuna."

Víkingur hafnaði í þriðja sæti Bestu deildar kvenna í fyrra.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.