Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mið 17. febrúar 2021 09:05
Magnús Már Einarsson
Dómarinn ógnaði leikmanni Ipswich
Mynd: Getty Images
Afar óvenjulegt atvik átti sér stað í markalausu jafntefli Ipswich og Northampton í ensku C-deildinni í gærkvöldi.

Darren Drysdale, dómari leiksins, var þá með ógnandi tilburði við Alan Judge leikmann Ipswich.

Darren dómari var að fara að sýna Judge gula spjaldið fyir leikaraskap þegar atvikið átti sér stað.

Á myndbandinu hér að neðan má sjá að Darren var ansi reiður en hann fór með höfuð sitt í átt að höfði Judge.

Lloyd Jones, leikmaður Northampton, tók síðan Darren dómara í burtu frá Judge.

Atvikið má sjá hér að neðan.

Athugasemdir
banner
banner