Wilson óvænt að semja aftur - Man Utd bætir öðrum miðjumanni Forest á óskalistann - City að klára kaup - Real fylgdist með Tonali
   þri 17. febrúar 2026 17:11
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Birkir Már skiptir yfir í KH (Staðfest)
Birkir Már Sævarsson.
Birkir Már Sævarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Birkir Már Sævarsson hefur fengið félagaskipti yfir í KH og er orðinn gjaldgengur með félaginu.

Valsarinn varð 41 árs í nóvember síðastliðnum og tók árið 2024 sitt síðasta tímabil með uppeldisfélaginu, Val.

Fjölskylda hans flutti til Svíþjóðar fyrir tímabilið 2024 og Birkir fór svo þangað eftir það tímabil. Hann gekk þá í raðir Nacka sem er í fjórðu efstu deild í Svíþjóð.

Birkir er hægri bakvörður sem lék á sínum ferli 103 landsleiki. Hann lék með Val, Brann og Hammarby á sínum atvinnumannaferli.

Hann virðist ekki vera á þeim buxunum að hætta alveg strax en spurning er hversu mikið hann spilar með KH í sumar. Þess má geta að Birkir var aðstoðarþjálfari KH sumarið 2019.

KH leikur í 3. deild karla í sumar eftir að hafa lent í öðru sæti 4. deildar á síðasta tímabili.
Athugasemdir
banner