Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 17. mars 2023 23:41
Brynjar Ingi Erluson
Shelvey skýtur á fyrrum liðsfélaga sína - „Voðalega geta þeir nöldrað
Jonjo Shelvey í leiknum í kvöld
Jonjo Shelvey í leiknum í kvöld
Mynd: Getty Images
Jonjo Shelvey, leikmaður Nottingham Forest, var ekki hrifinn af hegðun fyrrum liðsfélaga sinna hjá Newcastle United í leik þessara liða í kvöld en hann segir þá nöldra óþarflega mikið.

Shelvey kom til Forest frá Newcastle í janúar en hefur verið að glíma við meiðsli á tímabilinu.

Eftir að hann steig upp úr meiðslum vann hann sér fast sæti í liði Forest.

Shelvey var vonsvikinn með úrslitin í kvöld og sagði þá fyrrum liðsfélaga sína nöldra heldur of mikið.

„Mér fannst við berjast af hörku og náðum að halda þeim í skefjum. Við vissum að þeir myndu vera mikið með boltann en þetta var bara einn af þessum leikjum og mjög vonsvikinn með úrslitin,“ sagði Shelvey.

„Þegar þú ert í þeirri stöðu sem við erum í, þá er hvert einasta stig mikilvægt. Strákarnir lögðu allt sitt í þetta og við áttum eitthvað skilið úr leiknum. Það voru ekki mörg dauðafæri hjá báðum liðum en þessu var bara ekki ætlað að gerast. Við þurfum að gleyma þessum leik og einbeita okkur að næsta.“

„Ég bjóst ekki við að leikmenn Newcastle myndu nöldra jafn mikið og þeir gerðu á vellinum, en svona er fótboltinn. Ég er hjá Forest í dag og gef allt mitt, en það er klárlega ekkert nema nöldrarar í þessu liði. Ég mun segja þeim það, en bara í gríni. Vonandi komast þeir í Evrópukeppni og ég hef bara jákvætt að segja um þetta félag,“
sagði Shelvey í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner