17.04.19 - 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalía í dag - Endurkomuleikur Emils?

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er einn leikur á dagskrá í ítölsku úrvalsdeildinni í dag.
Um er að ræða leik Lazio og Udinese á heimavelli fyrrnefnda liðsins. Leikurinn hefst klukkan 17:00 og er sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 4.
Fyrir leikinn er Lazio í áttunda sæti og Udinese í 16. sæti, þremur stigum frá fallsæti.
Emil Hallfreðsson er á mála hjá Udinese. Hann er í 22 leikmannahópi Udinese fyrir leikinn og gæti hann spilað sinn fyrsta leik fyrir félagið frá því hann sneri aftur til þess í febrúar. Emil hefur verið að stíga upp úr meiðslum.
Leikur dagsins:
17:00 Lazio - Udinese (Stöð 2 Sport 4)