Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 17. maí 2022 23:10
Ívan Guðjón Baldursson
Arsenal að ganga frá kaupum á brasilískum táningi
Jesus er að skoða að ganga til liðs við Arsenal en vill spila í Meistaradeildinni.
Jesus er að skoða að ganga til liðs við Arsenal en vill spila í Meistaradeildinni.
Mynd: Getty Images

Arsenal er að ganga frá kaupum á Marquinho, 19 ára kantmanni frá Brasilíu.


Marquinho er mikið efni og hefur skorað 4 mörk og lagt 3 upp í 41 leik með Sao Paulo.

Arsenal mun greiða tæpar 5 milljónir fyrir leikmanninn, sem er búinn að segja við stjórn Sao Paulo að hann muni ekki endurnýja samning sinn við félagið.

Þar að auki virðist Arsenal staðráðið í því að kaupa Gabriel Jesus frá Manchester City. Jesus, 25 ára, hefur skorað rétt tæplega 100 mörk fyrir City.

Arsenal mun greiða um 50 milljónir punda til að fá Jesus, sem rennur út á samningi á næsta ári. Ekki er pláss fyrir hann í byrjunarliði City eftir komu Erling Braut Haaland.


Athugasemdir
banner
banner
banner