Fotbolti.net
17.05.24 - 22:10
Brynjar Ingi Erluson

Ítalía: Napoli að missa af Evrópusæti

Ítalía: Napoli að missa af Evrópusæti
Canon

Mynd: Getty Images

Fiorentina 2 - 2 Napoli
0-1 Amir Rrahmani ('8 )
1-1 Cristiano Biraghi ('40 )
2-1 M'Bala Nzola ('42 )
2-2 Khvicha Kvaratskhelia ('57 )
Fiorentina og Napoli skildu jöfn, 2-2, í 37. umferð Seríu A á Ítalíu í kvöld.

Varnarmaðurinn Amir Rrahmani skoraði með skalla eftir hornspyrnu Matteo Politano á 8. mínútu.

Cristiano Biraghi jafnaði metin fyrir Fiorentina á 40. mínútu með einu flottasta marki umferðarinnar er hann skrúfaði aukaspyrnu í slá og inn.

M'Bala Nzola kom Fiorentina yfir tveimur mínútum síðar er hann dansaði með boltann, inn í teiginn og lét síðan vaða með föstu skoti í fjærhornið.

Georgíumaðurinn Kvicha Kvaratskhelia svaraði aukaspyrnumarki Biraghi með því að þruma boltanum af um 30 metra færi efst upp í vinstra hornið. Glæsileg aukaspyrna Kvaratskhelia.

Gestirnir í Napoli fengu nokkur góð færi til að gera sigurmarkið en nýttu færin illa. Lokatölur 2-2 og gerði þetta svo gott sem út um vonir Napoli á að ná í Evrópusæti, sem er eiginlega ótrúlegt því átta efstu sætin fara í Evrópukeppni.

Napoli er í 9. sæti með 52 stig, tveimur stigum á eftir Fiorentina sem á leik til góða. Napoli varð ítalskur meistari á síðasta tímabili en tókst engan veginn að halda sér á sama skriði á þessari leiktíð.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio10+1628
2Roma11+2127
3Inter10+1325
4Como10+1023
5Milan10+921
6Frosinone11+920
7Juventus10+317
8Bologna11+217
9Cagliari11-516
10Napoli10+414
11Torino11-214
12Genoa10-413
13Atalanta10-411
14Lecce11-1010
15Parma11-88
16Fiorentina10-88
17Sassuolo11-138
18Monza10-77
19Venezia11-136
20Udinese11-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.