Michael Olise, Arne Slot, Julian Alvarez, Rafael Leao, Yan Diomande og fleiri góði koma til sögu í slúðrinu
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
Siggi Lár: Gaman að vera í Laugardalnum
Horfðu á Besta spjallið - Staða mála skoðuð í landsleikjahlénu
Pablo Punyed sáttur: Vona að ég sjálfur geti spilað minna og minna í sumar
Gaui Lýðs um uppganginn á Ásvöllum: Setjum stefnuna á að komast í efstu deild
Nemanja Pjevic: Þegar maður bíður eftir strætó koma þeir allt í einu þrír í einu
Hrafn Guðmunds: Ég þarf að halda þessu áfram
Davíð Smári: Höfum verið með óþægilega líkamstjáningu
Svekktur Nenad: Tek þetta á mig
Magnús Már súr: Það var samt ekki það sem fór með okkur í dag
Gunnari Heiðari fannst ekkert eðlilega gaman að horfa á HK liðið
Glódís: Þetta eru hræðilegar reglur
Stórt fyrir Söndru Maríu - „Hún elskar að vera hérna"
   sun 17. maí 2026 21:34
Kári Snorrason
Rúnar: Dálítið leiðinlegt að vera svona smámunasamur
Rúnar Kristinsson.
Rúnar Kristinsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fram varð fyrsta liðið til að ná stigi af KR í Bestu deildinni þetta sumarið er liðið gerði 2-2 jafntefli við Vesturbæinga fyrr í kvöld.

Staðan var jöfn í hálfleik en á 84. mínútu komust KR-ingar yfir en sex mínútum síðar jöfnuðu Framarar metin með marki úr hornspyrnu.

Fótbolti.net ræddi við Rúnar Kristinsson, þjálfara Fram, eftir leik.

„Ég er sáttur eftir að hafa lent 2-1 undir í restina. Ég hefði viljað öll stigin, engin spurning. Þetta er leikur sem við getum verið svekktir yfir að hafa ekki unnið en að sama skapi held ég að maður taki alltaf jafntefli. Ég held að það séu sanngjörnustu úrslitin úr þessum leik.“

Ertu ánægður með spilamennskuna?
„Nei, mér fannst við ekki eiga einn af okkar betri leikjum í sumar. Sérstaklega með boltann fannst mér við ekki nægilega flinkir að finna samherja til að komast í betri skyndisóknir og hræða þá meira. Mér fannst það ekki nægilega gott í síðari hálfleik.“

Það var flautað meira á Fram heldur en KR, ósáttur við það?
„Já, þess vegna var ég tuðandi allan leikinn. Ég er svo smámunasamur og það er dálítið leiðinlegt að vera svona. Ég var í miklu sambandi við fjórða dómarann (Gunnar Odd) í dag og bið hann velvirðingar á því. Ég held að ég hafi haft rétt fyrir mér ef maður skoðar tölfræðina. Hann flautaði sautján aukaspyrnur á Fram en sex á KR í öllum leiknum. Það fannst mér alveg galið.“

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner