Það er talað um að Chelsea sé búið að ná munnlegu samkomulagi við bakvörðinn Achraf Hakimi.
Hakimi hefur verið orðaður við enska félagið í dágóðan tíma en hann spilar með Inter Milan á Ítalíu.
Samkvæmt blaðamanninum Ekrem Konur þá er Hakimi búinn að ræða við Chelsea og vill fara til félagsins.
Marcos Alonso mun líklega færa sig til Inter í staðinn en hann var varamaður á Englandi á síðustu leiktíð.
Hakimi vann ítölsku úrvalsdeildina undir Antonio Conte sem lét svo af störfum eftir tímabilið.
Chelsea vann Meistaradeildina á tímabilinu og útlitið því afar bjart á Stamford Bridge.
Athugasemdir