Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
   mið 17. júlí 2024 15:13
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sölvi Haraldsson
Höskuldur: Erum að missa stórkostlegan leikmann
Ætla að svara fyrir úrslitin úti
'Mér finnst ekki hægt að nota aðstæður sem einhverja afsökun'
'Mér finnst ekki hægt að nota aðstæður sem einhverja afsökun'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jason Daði er farinn til Grimsby.
Jason Daði er farinn til Grimsby.
Mynd: Grimsby
'Við ætlum í gegnum þetta'
'Við ætlum í gegnum þetta'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Klukkan 19:15 annað kvöld tekur Breiðabik á móti Tikves á Kópavogsvelli í seinni leik liðanna í 1. umferð forkeppninnar í Sambandsdeildarinnar. Breiðablik er einu marki undir eftir fyrri leik liðanna sem fram fór í Skopje síðasta fimmtudag.

Sölvi Haraldsson, fréttamaður Fótbolta.net, ræddi við fyrirliðann Höskuld Gunnlaugsson á Kópavogsvelli í dag.

„Það er tilhlökkun, menn eru peppaðir að svara fyrir hvernig leikurinn endaði úti. Við vorum sáttir lengi framan af með hvernig við vorum að spila. Það er spenna og markmiðið okkar að klára þetta einvígi á 90 mínútum á morgun," segir Höskuldur en til þess að það gerist þarf Breiðablik að vinna með allavega tveimur mörkum.

Blikar spiluðu í 30 stiga hita úti á þjóðarleikvangi Norður-Makedóna.

„Ég get ekki talað illa um þessar aðstæður, flott gras, geggjuð stúka og sólin var komin niður. Það var vissulega mjög heitt en það var ekki verið að baka mann. Maður hefur alveg verið í erfiðari og meira krefjandi aðstæðum en þetta. Mér finnst ekki hægt að nota aðstæður sem einhverja afsökun."

Breiðablik leiddi með tveimur mörkum í leikhléi en í seinni hálfleik komu heimamenn til baka og unnu að lokum 3-2 sigur.

„Við missum tökin og yfirburðina sem við höfðum. Við vorum búnir að stýra vel með bolta og varnarlega vorum við að pressa þá mjög ofarlega. Eftir fyrsta markið lendum við mitt á milli, þeir komast hærra og löngu boltarnir verða hættulegri. Okkur var refsað of mikið fyrir slæma kaflann."

Verður þetta allt öðruvísi leikur í rigningunni á morgun?

„Já, ég held það. Það verður forvitnilegt að að sjá hvernig þeir mæta, hvort þeir ætli að verja forystuna frá fyrstu mínútu og liggja mjög aftarlega, eða hvort þeir reyni að sjokkera okkur. Við þurfum að einbeita okkur að okkar skipulagi og treysta því."

„Heilt yfir reynum við að spila okkar leik og reynum að vera á okkar degi; skrúfa upp þá háu ákefð sem hefur einkennt okkur á Kópavogsvelli í gegnum tíðina og mörg lið hafa ráðið illa við. Við sækjum til sigurs frá fyrstu mínútu, en á sama tíma þurfum við að vera meðvitaðir að við þurfum ekki þrjú mörk á fyrstu 10 og við þurfum að halda skipulagi. Við megum ekki flýta okkur of mikið,"

„Þetta eru skemmtilegustu leikirnir og ég hvet sem flesta til að mæta og styðja á bakvið okkur. Við ætlum í gegnum þetta,
sagði Höskuldur.

Ógeðslega skemmtilegur strákur og góður vinur
Jason Daði Svanþórsson var á dögunum seldur til Grimsby frá Breiðabliki. Höskuldur var spurður út í sinn fyrrum liðsfélaga.

„Við erum fyrst og fremst að missa ógeðslega skemmtilegan strák og góðan vin. Inn á vellinum erum við að missa stórkostlegan leikmann; klárlega einn besti sóknarleikmaðurinn í þessari deild undanfarin ár. Hann hefur reynst okkur mjög dyggur og skemmtilegur þjónn. Við erum að missa frábæran gaur og frábæran leikmann."

„Það er bara það klassíska, það er stór hópur, aðrir þurfa bara stíga upp og fá núna frekara tækifæri,"
sagði fyrirliðinn.

Í lok viðtalsins ræðir Höskuldur um Shamrock Rovers og einvígi þeirra við Víking og Breiðabliks. Hann ræðir svo einnig um möguleika Breiðabliks í Bestu deildinni.
Slapp
banner
banner