Hér má sjá brot af fótboltaumræðunni á samskiptamiðlinum Twitter í boði Vodafone. Með því að fylgja Fótbolta.net á Twitter færðu fréttaveitu þar sem inn rúlla nýjustu fréttirnar úr boltanum.
Notið kassamerkið #fotboltinet fyrir boltaumræðuna á Twitter. Heimasvæði Fótbolta.net á Twitter er á @Fotboltinet.
Ég verð að játa það að ég fann nú töluvert mikið með markverði Lettneska liðsins þegar að hún gekk af velli núna í hálfleik. Hún leit út fyrir að vera algjörlega niðurbrotin. Vonandi nær einhver að stappa í hana stálinu! #KSI #fotboltinet
— Benni Wiencke (@BenniWiencke) September 17, 2020
Lettnesku stelpurnar eru greinilega með hugann við íslensku strákana sem ætla að heimsækja þær á hótelið eftir leik.
— Kristján Óli Sigurðsson (@kristjanoli) September 17, 2020
Ég hef séð nokkur slök lið mæta stelpunum á Laugardalsvelli í gegnum tíðina en þetta er átakanlegt #fotboltinet
— Tómas Árni Ómarsson (@TomasArni) September 17, 2020
My lord hvað þetta landslið okkar lítur vel út! Sturlaðir ungir leikmenn að koma inn í bland við eldri kanónur með nóg eftir. Næstu ár verða eitthvað! #fotboltinet
— Sigrún Ólafs (@SigrunOlafs) September 17, 2020
Elska þetta landslið, gaddem 🔥 #RoadToEngland
— Kristjana Arnarsdóttir (@kristjanaarnars) September 17, 2020
Stundum sagt að konur séu konum verstar. Það er alveg greinilegt á þessum landsleik. Enginn miskunn. #isllet #fotboltinet
— Daniel Scheving (@dscheving) September 17, 2020
@SveindisJane AÐ KOMA ÍSLANDI Í 2-0 Í SÍNUM FYRSTA LANDSLEIK!!! HVAÐA RUGL?!?!? EINTÓM HAMINGJA!!! #KSI #fotboltinet
— Benni Wiencke (@BenniWiencke) September 17, 2020
26 sek
— Árni Þór Gunnarsson (@ArniThor8) September 17, 2020
Ekki slæmt!!#fyrirÍsland #Fotboltinet pic.twitter.com/YfXl0bKJeg