Fotbolti.net
17.09.21 - 15:04
Elvar Geir Magnússon

Jói Berg: Bjartsýnir á að fyrsti sigurinn komi gegn Arsenal

Jóhann Berg Guðmundsson.

Jóhann Berg Guðmundsson.

Canon

Mynd: Getty Images

Jóhann Berg Guðmundsson segir að það sé enginn örvæntingarfullur í leikmannahópi Burnley þrátt fyrir erfiða byrjun á tímabilinu. Burnley hefur aðeins fengið eitt stig úr fyrstu fjórum umferðunum og mætir Arsenal á Turf Moor á morgun.

Burnley vann fyrsta sigur sinn á síðasta tímabili í áttundu umferðinni en hélt sér síðan á endanum uppi með því að vera ellefu stigum frá fallsvæðinu.
„Á síðasta tímabili biðum við lengi eftir fyrsta sigrinum svo við erum klárlega ekki að fara neitt á taugum. Frammistaðan hjá okkur hefur verið nokkuð góð en þetta snýst um að spila vel allar 90 mínúturnar, halda einbeitingu allan tímann. Það er næsta skref hjá okkur," segir Jóhann Berg.

Burnley tapaði gegn Everton á útivelli á mánudag þrátt fyrir að komast yfir í leiknum. Everton skoraði þrjú mörk á sex mínútum.

„Þetta var ákveðið áfall. Jöfnunarmarkið lyfti andanum á vellinum, við höfðum verið betra liðið og áhorfendur létu þá heyra það. Þessar sex mínútur voru ekki góður kafli en bæði gegn Everton og Brighton komu kaflar þar sem við spiluðum virkilega vel. Svo hafa menn orðið kærulausir og fengið á sig ódýr mörk. Það er eitthvað sem er ólíkt okkur og eitthvað sem við þurfum ð laga. Vonandi getum við gert það á laugardaginn."

Jóhann Berg segir að það sé flottur tímapunktur á morgun að taka fyrsta sigurinn, gegn Arsenal.

„Við vitum að þeim gæti þótt erfitt að koma á Turf Moor og við ætlum að sjá til þess að svo verði. Við erum bjartsýniur á að fyrsti sigurinn komi á morgun," segir Jóhann Berg Guðmundsson.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.