Fotbolti.net
17.09.22 - 16:58
Kári Snorrason

Siggi Höskulds: Leggst bara hræðilega í okkur núna fyrst við erum ekki í fallsæti

Auglýsing
Siggi Höskulds: Leggst bara hræðilega í okkur núna fyrst við erum ekki í fallsæti
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Leiknir R. mætti ÍA á Norðurálsvellinum fyrr í dag, leikar enduðu 2-1 fyrir Breiðhyltingum þó að Skagamenn skoruðu öll mörkin. Þeir Tobias Stagaard og Viktor Jónsson urðu báðir fyrir því óláni að setja boltann í sitt eigið net. Sigurður Heiðar Höskuldsson mætti léttur í viðtal eftir leik.
„Þetta var baráttu leikur, bæði lið voru að selja sig dýrt. Mér fannst við ekki nógu grimmir í fyrri hálfleik en mér fannst við vera betra liðið og svona fínn bragur á okkur að mörgu leiti."

Leiknir R. er komið úr fallsæti.

„Það er bara fínt, það eru fimm leikir eftir og við þurfum bara að horfa á næsta leik eins og alltaf og sést hérna seint í seinni hálfleik að menn eru orðnir þreyttir. Þetta er búið að vera langt tímabil og nú þurfum við að nýta þessar tvær vikur í að einhvernvegin jafna okkur og gera okkur klára í alvöru mánuð."

Þetta var síðasta umferð fyrir tvískiptingu hvernig leggst tvískiptingin í hópinn?

„Leggst bara hræðilega í okkur núna fyrst við erum ekki í fallsæti nei nei, hún leggst vel í okkur þetta er eitthvað sem við erum búnir að hugsa um í allt sumar að gera okkur klára í þetta. Núna koma tvær vikur þar sem við erum að stilla okkur af og vera klárir."

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.