Fotbolti.net
17.10.21 - 16:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Ítalía: Ilicic með tvö mörk - klikkaði á víti

Ítalía: Ilicic með tvö mörk - klikkaði á víti
Canon

Mynd: Getty Images

Fjórum leikjum er lokið í ítölsku Serie A í dag. Atalanta vann Empoli, Cagliari vann góðan sigur í botnbaráttunni og jafntefli í tveimur leikjum.
Atalanta var 2-1 yfir í hálfleik en Josip Ilicic skoraði bæði mörkin fyrir Atalanta. Liðið fékk vítaspyrnu á 68. mínútu og það var tækifæri fyrir Ilicic að skora þrennuna en hann brenndi af.

Atalanta bætti tveimur mörkum við í síðari hálfleik, 4-1 lokatölur.

Cagliari vann Sampdoria 3-1. Joao Pedro skoraði tvö og Martin Caceres fyrrum leikmaður Juventus með eitt.

Genoa og Sassuolo skyldu jöfn en Genoa jafnaði á lokamínútunni. Udinese og Bologna gerðu einnig jafntefli en Udinese lék manni færri allan síðari hálfleikinn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.