17.11.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Aftur á meiðslalista Bayern

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Kanadíski bakvörðurinn Alphonso Davies er aftur kominn á meiðslalistann hjá Bayern München, en félagið staðfesti tíðindin í dag.
Davies hefur glímt við erfið meiðsli undanfarin tvö ár. Hann sleit krossband í byrjun árs og hefur síðan þá nokkrum sinnum meiðst aftan í læri.
Hann hafði náð góðum bata fyrir tímabilið og komið sér aftur í fínt form, en meiddist á ný aftan í læri í 3-2 sigri Kanada á Gvatemala á laugardag.
Bayern hefur staðfest að Davies missi af næstu leikjum vegna meiðslanna, en þau eru ekki talin alvarleg og er reiknað með að hann snúi aftur undir lok mánaðarins.
Davies hefur leikið 15 leiki með Bayern á tímabilinu og komið að átta mörkum í öllum keppnum.