Auðveld ákvörðun að semja í Mosó - „Stórt fyrir mig að vera hluti af þessu verkefni"

Það var auðvitað erfitt, ég vildi spila eins og allir aðrir

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Allt félagið getur verið stolt af þessum tveimur tímabilum

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég fór á úrslitaleikinn í bikarnum, sá liðið spila og þetta er sterkt lið með góðum leikmönnum.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Hann býr yfir mikilli reynslu og sér skýrt fyrir sér hvernig hann vill að liðið spili.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það er gott að sjá hversu margir hæfileikaríkir leikmenn eru í deildinni og getustigið er alltaf að verða betra.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þetta er stórt tækifæri og ég sé mikla möguleika hjá félaginu, í leikmannahópnum og bænum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég er mjög stoltur af tímanum, áttina sem Fram hefur farið í og því sem við afrekuðum á þessum tveimur árum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég vona að ég geti gert það sama og í Fram, geti komið með stöðugleika og hjálpað félaginu að taka næsta skref í því að verða stöðugt og gott lið í Bestu deildinni

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það var auðvitað erfitt, ég vildi spila eins og allir aðrir

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sænski miðjumaðurinn, sem hefur spilað með Fram síðustu tvö tímabil, skrifar undir tveggja ára samning í Mosfellsbæ.

„Gerir gríðarlega mikið fyrir Aftureldingu að fá svona öflugan mann"
Varst þú sáttur við að fara frá Fram á þessum tímapunkti?
„Ég er mjög sáttur við tíma minn í Fram. Félagið hefur bætt sig, tekið skref fram á við, frá því að ég kom fyrir tveimur árum síðan. Við vorum í 5. sæti í fyrra og í ár enduðum við í 3. sæti. Ég er mjög stoltur af þróun félagsins og það er frábært að sjá þróunina hjá leikmönnum líka. Ég er mjög stoltur af tímanum, áttina sem Fram hefur farið í og því sem við afrekuðum á þessum tveimur árum. Allt félagið getur verið stolt af þessum tveimur tímabilum."
Tibbling er sem stendur í fríi í Svíþjóð en kemur aftur til Íslands fljótlega og klárar KSÍ B-þjálfaragráðuna.
Fjölskyldan nýtur lífsins á Íslandi
Það er ekki langt úr Úlfarsárdal í Mosfellsbæ. Þarft þú að flytja?
„Ég er ekki viss um það, en mögulega, við sjáum til. Þetta er stysta fjarlægðin sem ég hef flutt mig um á ferlinum, það er ekki langt á milli. Við fjölskyldan erum mjög ánægð með lífið á Íslandi, erum hrifin af Reykjavík og það er ánægjulegt að geta verið áfram á Íslandi."
Hefur lífið á Íslandi komið þér á óvart?
„Ég myndi segja það. Við erum mjög ánægð. Við þurftum að venjast veðrinu og sumum hlutum, en við erum mjög hrifin af borginni og fólkið er frábært. Við höfum eignast góða vini og höfum notið okkar. Það er líka hluti af því að við vildum vera áfram."
Hrifinn af getustiginu í Bestu deildinni
Hvernig metur þú getustigið í Bestu deildinni?
„Ég var mjög hrifinn af því þegar ég kom hversu góð deildin var. Ég hafði séð íslensk lið í Evrópukeppnum, en það var gott að sjá hversu góð deildin var. Staðallinn er mjög góður, það eru góð lið í deildinni og það hefur gengið vel hjá liðum í Evrópu. Víkingur hefur unnið mjög góð lið í Evrópu og mér líður eins og deildin sé að verða betri. Það er gott að sjá hversu margir hæfileikaríkir leikmenn eru í deildinni og getustigið er alltaf að verða betra. Lið á Íslandi geta spilað vel við lið úr góðum deildum og ég held að við munum sjá fleiri góð úrslit hjá íslenskum liðum í Evrópu í framtíðinni."
Tibbling er reynslumikill leikmaður sem spilað hefur í sænsku, dönsku og hollensku úrvalsdeildinni. Hann varð bikarmeistari í Hollandi og Danmörku og árið 2015 varð hann Evrópumeistari með U21 landsliði Svía.
Enn betra lið í ár
Hvernig voru viðræðurnar við Aftureldingu, varstu strax áhugasamur?
„Já, að sjálfsögðu. Ég vissi af Aftureldingu, þeir voru í deildinni 2025 og þú gast séð að getustigið í deildinni var hátt það tímabilið, Afturelding féll með mörg stig í síðustu umferðinni. Það var stutt á milli þess að enda í efri hluta og svo falla, deildin var jöfn."
„Það sást að liðið var gott og mér fannst það enn betra í ár. Ég fór á úrslitaleikinn í bikarnum, sá liðið spila og þetta er sterkt lið með góðum leikmönnum. Þeir eru með skýr einkenni hvernig þeir vilja spila. Þetta er stórt tækifæri og ég sé mikla möguleika hjá félaginu, í leikmannahópnum og bænum. Þetta var á endanum nokkuð auðveld ákvörðun að taka."
Hann var valinn í lið ársins í Bestu deildinni á sínu fyrsta tímabili, kom virkilega öflugur inn í lið Fram sem fór upp um fjögur sæti milli ára.
Með skýra hugmyndafræði
Hvernig var að tala við þjálfarann, Magnús Má Einarsson?
„Það var mjög gott. Maður finnur að hann hefur þjálfað í langan tíma þó að hann sé ekki mjög gamall. Hann býr yfir mikilli reynslu og sér skýrt fyrir sér hvernig hann vill að liðið spili. Ég held að ég geti lært mikið af honum og félaginu. Ég er hrifinn af því hvernig hann vill gera hlutina, hann vill bæta félagið og sér möguleikana fyrir sér í Mosfellsbæ. Það er stórt fyrir mig að vera hluti af þessu verkefni."
Vonast til að geta fært Aftureldingu stöðugleika
Hvað kemur þú með í Aftureldingu?
„Ég vona að ég geti gert það sama og í Fram, geti komið með stöðugleika og hjálpað félaginu að taka næsta skref í því að verða stöðugt og gott lið í Bestu deildinni - og svo vonandi enn meira ef það er hægt. Fyrst þurfum við að ná stöðugleika í deildinni og ég vona að ég geti hjálpað með það."
„Þá getur þú ekki spilað á háu stigi í íþróttum"
Tibbling var í minna hlutverki í ár en tímabilið á undan. Hvernig var hans upplifun?
„Ég spilaði mikið í byrjun, varð fyrir smávægilegum meiðslum og spilaði svo aftur. En eftir meiðslin í Vestmannaeyjum þá varð hlutverkið minna. Mér fannst ég spila vel þegar ég spilaði, en ég spilaði ekki mikið, byrjaði held ég bara 1-2 leiki eftir það. Fótbolti er svona stundum. Það var auðvitað erfitt, ég vildi spila eins og allir aðrir."
„Við spiluðum mjög vel og þjálfararnir þurfa að taka ákvörðun á hvað þeir trúa, hvaða leikmenn þeir telja að færi mestan möguleika á sigri. Því miður valdi Rúnar mig ekki í liðið á lokakaflanum. Það er erfitt, en það er hluti af leiknum. Ef þú getur ekki tekið því þá getur þú ekki spilað á háu stigi í íþróttum. Þetta er keppni, bæði á móti andstæðingum og svo innan leikmannahópsins. Því miður var ég ekki valinn jafnoft í liðið og ég hefði viljað, en sem leikmaður þarf að bera virðingu fyrir því," segir Tibbling.

Allt félagið getur verið stolt af þessum tveimur tímabilum

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég fór á úrslitaleikinn í bikarnum, sá liðið spila og þetta er sterkt lið með góðum leikmönnum.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Hann býr yfir mikilli reynslu og sér skýrt fyrir sér hvernig hann vill að liðið spili.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það er gott að sjá hversu margir hæfileikaríkir leikmenn eru í deildinni og getustigið er alltaf að verða betra.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þetta er stórt tækifæri og ég sé mikla möguleika hjá félaginu, í leikmannahópnum og bænum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég er mjög stoltur af tímanum, áttina sem Fram hefur farið í og því sem við afrekuðum á þessum tveimur árum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég vona að ég geti gert það sama og í Fram, geti komið með stöðugleika og hjálpað félaginu að taka næsta skref í því að verða stöðugt og gott lið í Bestu deildinni

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
